FRÉTT FJÁRMÁL HINS OPINBERA 07. DESEMBER 2023

Áætlað er að tekjuafkoma hins opinbera hafi verið neikvæð um 32,3 milljarða króna á þriðja ársfjórðungi 2023, eða sem nemur 3% af vergri landsframleiðslu ársfjórðungsins.

Í heild er áætlað að tekjur hins opinbera hafi aukist um 9,8% frá þriðja ársfjórðungi 2022. Vegur aukning skatttekna þyngst en áætlað er að tekjur vegna skatta á tekjur og hagnað hafi aukist um 7,6% og tekjur vegna skatta á vöru og þjónustu um 10,2% frá sama tímabili fyrra árs. Á sama tímabili er áætlað að tekjur vegna tryggingagjalda hafi aukist um 9,3%. Áætlað er að aðrar tekjur hafi aukist um 18,2% á þriðja ársfjórðungi 2023 frá sama tímabili fyrra árs og vega þar þyngst auknar vaxtatekjur.

Gert er ráð fyrir að heildarútgjöld hafi aukist um 4,8% á þriðja ársfjórðungi 2023 frá sama tímabili fyrra árs. Samneysluútgjöld hins opinbera halda áfram að aukast en áætlað er að launakostnaður hafi aukist um 8,8% og útgjöld vegna kaupa á vöru og þjónustu um 11,6% frá sama tímabili fyrra árs. Áætlað er að félagslegar tilfærslur hafi aukist um 7,5%. Hins vegar er áætlað að tilfærsluútgjöld hafi dregist saman um 11,4% og opinber fjárfesting um 18,6% frá þriðja fjórðungi 2022.

Vert er að hafa í huga að afmörkun hins opinbera í þjóðhagsreikningum og í talnaefni um fjármál hins opinbera miðast við evrópska þjóðhagsreikningastaðalinn (ESA2010). Sem hluti af hinu opinbera teljast meðal annars lánasjóðir ríkissjóðs sem hafa veruleg áhrif á vaxtatekjur og gjöld hins opinbera. Í greinagerð sem gefin var út 30. nóvember 2020 og er aðgengileg á vef Hagstofunnar er fjallað sérstaklega um aðferðafræðilegan grundvöll geiraflokkunar og úrlausn álitamála er snúa að flokkun fyrirtækja og stofnana í eigu ríkisins.


Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang opinberfjarmal@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.