FRÉTT FJÁRMÁL HINS OPINBERA 09. DESEMBER 2016

Tekjuafkoma hins opinbera reyndist jákvæð um 2,5 milljarða króna á þriðja ársfjórðungi 2016, en á sama tíma 2015 var hún neikvæð um 9,0 milljarða króna. Tekjuafgangurinn nam 0,4% af landsframleiðslu ársfjórðungsins eða 1,0% af tekjum hins opinbera. Fyrstu níu mánuði ársins var afgangurinn 378,4 milljarðar eða 33,8% af tekjum tímabilsins. Tekjur af stöðugleikaframlagi upp á 384,3 milljarða króna eru meðtaldar á 1. ársfjórðungi 2016.


Fjármál hins opinbera á 3. ársfjórðungi 2016 - Hagtíðindi

Talnaefni (sjá Fjárhagur hins opinbera eftir ársfjórðungum 2004-2016)

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang opinberfjarmal@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.