FRÉTT FJÁRMÁL HINS OPINBERA 15. DESEMBER 2008

Út eru komin Hagtíðindi í efnisflokknum þjóðhagsreikningar um fjármál hins opinbera á 3. ársfjórðungi 2008. Í þeim fjórðungi var tekjuafkoman hins opinbera lakari en nokkru sinni frá því Hagstofan hóf skýrslugerð af þessu tagi í ársbyrjun 2004. Nam tekjuhalli hins opinbera á þessum ársfjórðungi 15 milljörðum króna samanborið við um 17 milljarða króna tekjuafgang á sama tíma 2007. Sem hlutfall af landsframleiðslu var tekjuhallinn 1,1% og sem hlutfall af tekjum hins opinbera 9,7%. Á fyrstu 9 mánuðum ársins varð tekjuafkoma hins opinbera neikvæð um 2,2 milljarða króna, sem samsvarar 0,2% af landsframleiðslu, en á sama tíma 2007 var tekjuafkoman hins vegar jákvæð um rúmlega 51 milljarð króna, eða 4% af landsframleiðslu.

Tekjuafkoma ríkissjóðs og almannatrygginga var neikvæð um rúmlega 11 milljarða króna á þriðja ársfjórðungi 2008 samanborið við um 16 milljarða króna jákvæða afkomu árið áður. Á fyrstu 9 mánuðum ársins var tekjuafkoma þessara aðila jákvæð um 3 milljarða króna samanborið við rúmlega 44 milljarða króna á sama tímabili 2007. Tekjuafkoma sveitarfélaganna var einnig neikvæð á 3. ársfjórðungi 2008 eða um 3,9 milljarða króna og því mun lakari en á sama tíma 2007 er hún var jákvæð um 1,4 milljarð króna. Fyrstu 9 mánuði 2008 mældist tekjuafkoma sveitarfélaganna neikvæð um 5,2 milljarða króna samanborið við jákvæða afkomu upp á 6,1 milljarð króna á sama tímabili 2007.

Fjármál hins opinbera á 3. ársfjórðungi 2008 - Hagtíðindi

Talnaefni 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.