FRÉTT FJÁRMÁL HINS OPINBERA 21. DESEMBER 2004

Hagstofan birtir nú samandregið yfirlit yfir fjármál ríkis og sveitarfélaga á 3. ársfjórðungi 2004 og samtölur fyrir fyrstu þrjá fjórðunga ársins. Yfirlit þetta er á rekstrargrunni og er birt í lok næsta ársfjórðungs eftir að viðkomandi fjórðungi lýkur. Yfirlit þetta er meðal annars unnið vegna þeirra alþjóðlegu skuldbindinga sem íslensk stjórnvöld hafa tekið á sig í tengslum við EES-samninginn, en það mun þó enn frekar koma innlendum stjórnvöldum að gagni við mat á hagþróun innan ársins. Þá nýtist þetta nýja efni Hagstofunni við gerð ársfjórðungslegra þjóðhagsreikninga.
     Efnið er tvískipt. Annars vegar er efni frá Fjársýslu ríkisins um tekjur og gjöld ríkissjóðs á 3. fjórðungi ársins og hins vegar er áætlað heildaryfirlit yfir tekjur og gjöld allra sveitarfélaga í landinu á sama tíma. Tölurnar frá sveitarfélögunum byggja á úrtaki 7 sveitarfélaga með 50% íbúafjöldans og hefur það úrtak verið fært upp til heildar. Enn sem komið er hefur ekki reynst unnt að birta mikla sundurliðun á efninu og takmarkast birtingin við rekstrartekjur, rekstrargjöld og tekjujöfnuð auk þess sem fjárfesting er sýnd sérstaklega. Áfram verður unnið að því í samvinnu við Fjársýsluna og sveitarfélögin að koma þessari skýrslusöfnun í fastan farveg.
     Á 3. ársfjórðungi 2004 reyndust heildartekjur ríkissjóðs vera rúmir 78 milljarðar króna á rekstrargrunni og tekjujöfnuður jákvæður um 0,4 milljarða króna. Tekjur sveitarfélaganna voru 21,6 milljarðar og tekjujöfnuður jákvæður um 0,9 milljarða. Tekjujöfnuður hins opinbera í heild varð því jákvæður um 1,3 milljarða króna eða 1,3% af tekjum þeirra. Sem hlutfall af landsframleiðslu ársins varð afgangurinn 0,1% hjá hinu opinbera í heild.

Í þessum tölum hefur verið leitast við að skrá bæði tekjur og gjöld á rekstrargrunni, ekki á greiðslugrunni eins og mánaðaryfirlit ríkissjóðs sýna. Rekstrargrunnur felur í sér að skuldbindingar eru bókfærðar þegar til þeirra er stofnað, óháð því hvenær greiðslur fara fram. Þetta eru bráðabirgðatölur, bæði hjá ríki og sveitarfélögum. Sérstaklega eru tölur um fjárfestingu sveitarfélaganna óvissu háðar.
     Á grundvelli þess efnis sem nú birtist um 3. ársfjórðung og fyrri talna um 1. og 2. ársfjórðung fæst mynd af fjárhag hins opinbera á fyrstu þrem fjórðungum  ársins 2004.

Samkvæmt þessu varð tekjujöfnuður hins opinbera neikvæður um 7,1 milljarð á fyrstu þrem fjórðungum ársins eða 0,8% af landsframleiðslu ársins. Sem hlutfall af tekjum varð tekjujöfnuður sveitarfélaganna lítið eitt lakari en ríkissjóðs.
     Árshlutatölur fyrstu þriggja ársfjórðunganna sem hér hefur verið lýst byggja að mestu á uppgjörsaðferðum ríkis- og sveitarfélaga. Þessar tölur eru því ekki fyllilega sambærilegar við þær árstölur sem Hagstofan birtir en þar er fylgt skilgreiningum þjóðhagsreikninga við mat á tekjum og gjöldum. Engu að síður ættu árshlutatölurnar að gefa skjótfengna mynd af þróun afkomunnar innan ársins og notagildi þeirra vex eftir því sem vitneskja liggur fyrir um fleiri árshluta.

Talnaefni (sjá "Fjárhagur hins opinbera eftir ársfjórðungum 2004")

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.