FRÉTT FJÁRMÁL HINS OPINBERA 08. JÚNÍ 2023

Áætlað er að tekjuafkoma hins opinbera hafi verið neikvæð um 21 milljarð króna á fyrsta ársfjórðungi 2023 eða sem nemur 2,1% af vergri landsframleiðslu ársfjórðungsins. Til samanburðar nam hallinn á fyrsta ársfjórðungi 2022 2,3% af vergri landsframleiðslu ársfjórðungsins.

Í heild er áætlað að tekjur hins opinbera hafi aukist um 11,8% frá fyrsta fjórðungi 2022. Tekjur af sköttum og tryggingagjaldi jukust um 15,1%.

Áætlað er að heildarútgjöld hafi aukist um 11,6% á fyrsta ársfjórðungi 2023 frá sama tímabili fyrra árs. Vaxtagjöld eru talinn hafa aukist um 46,2% frá fyrsta ársfjórðungi 2022 sem skýrist að hluta til af versnandi lánakjörum. Áætlað er að útgjöld vegna launa hafi aukist um 6,4%, kaup á vöru og þjónustu um 9,4% og opinber fjárfesting um 19,7%.


Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang opinberfjarmal@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.