FRÉTT FJÁRMÁL HINS OPINBERA 29. JÚNÍ 2004

Hagstofan birtir nú í fyrsta sinn samandregið talnaefni yfir fjármál ríkis og sveitarfélaga á rekstrargrunni innan ársins en ekki eingöngu árstölur eins og verið hefur. Að þessu sinni nær talnaefnið yfir fyrsta ársfjórðung 2004. Framvegis verður þetta efni birt ársfjórðungslega í lok næsta ársfjórðungs eftir að viðkomandi fjórðungi lýkur. Talnaefni þetta er meðal annars unnið vegna þeirra alþjóðlegu skuldbindinga sem íslensk stjórnvöld hafa tekið á sig í tengslum við EES-samninginn, en það mun þó enn frekar koma innlendum stjórnvöldum að gagni við mat á hagþróun innan ársins. Þá mun þetta nýja efni nýtast Hagstofunni við gerð ársfjórðungslegra þjóðhagsreikninga.
       Efnið er tvískipt. Annars vegar er efni frá Fjársýslu ríkisins um tekjur og gjöld ríkissjóðs á 1. fjórðungi ársins og hins vegar er áætlað heildaryfirlit yfir tekjur og gjöld allra sveitarfélaga í landinu á sama tíma. Tölurnar frá sveitarfélögunum byggja á úrtaki 7 sveitarfélaga með 50% íbúafjöldans og hefur það úrtak verið fært upp til heildar. Að þessu sinni hefur ekki reynst unnt að birta mikla sundurliðun á efninu og takmarkast birtingin við rekstrartekjur, rekstrargjöld og tekjujöfnuð auk þess sem fjárfesting er sýnd sérstaklega. Á næstunni verður unnið að því í samvinnu við Fjársýsluna og sveitarfélögin að koma þessari skýrslusöfnun í fastan farveg. 
       Á fyrsta ársfjórðungi 2004 reyndust heildartekjur ríkissjóðs vera tæpir 67 milljarðar króna og tekjujöfnuður neikvæður um 1,3 milljarða króna. Tekjur sveitarfélaganna voru rúmir 21 milljarður og tekjujöfnuður neikvæður um 0,6 milljarða. Tekjujöfnuður hins opinbera í heild varð því neikvæður um 2,0 milljarða króna eða 2,2% af tekjum þeirra. Þetta eru bráðabirgðatölur, bæði hjá ríki og sveitarfélögum.

Í þessum tölum hefur verið leitast við að skrá bæði tekjur og gjöld á rekstrargrunni, ekki á greiðslugrunni eins og mánaðaryfirlit ríkissjóðs sýna. Rekstrargrunnur felur í sér að skuldbindingar eru bókfærðar þegar til þeirra er stofnað, óháð því hvenær greiðslur fara fram. Enn sem komið er gera sveitarfélög almennt ekki árshlutauppgjör fyrir 1. ársfjórðung en hafa lagt áherslu á hálfsársuppgjör og níu mánaða uppgjör af þessu tagi.  Þær tölur sem hér birtast fyrir 1. ársfjórðung byggja því að talsverðu leyti á greiðslutölum og áætlunin um fjárfestingu í fjórðungnum er talsverðri óvissu háð.
       Jafnframt þeim ársfjórðungstölum sem hér birtast þá hafa árstölur sveitarfélaganna fyrir árin 2002 og 2003 verið endurskoðaðar frá því sem birt var í mars síðastliðnum. Endurskoðað talnaefni fyrir þessi ár er birt á heimasíðu Hagstofunnar. 

 

 ________________________________________________________

Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.
Nánari upplýsingar veita Hólmfríður Sigurðardóttir í síma 528 1126 og Helga Jóhannesdóttir í síma 528 1124.

 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.