FRÉTT FJÁRMÁL HINS OPINBERA 14. SEPTEMBER 2017

Tekjuafkoma hins opinbera var jákvæð um 309,5 milljarða króna árið 2016 eða sem nemur 12,6% af landsframleiðslu. Til samanburðar var tekjuafkoman neikvæð um 18,2 milljarða króna árið 2015 eða 0,8% af landsframleiðslu. Þessi góða afkoma skýrist öðru fremur af 384,2 milljarða króna stöðugleikaframlagi frá slitabúum fallinna fjármálafyrirtækja. Meðtalið í útgjöldum hins opinbera er gjaldfærsla upp á 105,1 milljarð króna vegna fjármagnstilfærslu ríkissjóðs til Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins.

Tekjur hins opinbera námu um 1.413,3 milljörðum króna og jukust um 51,8% milli ára. Sem hlutfall af landsframleiðslu mældust þær 57,7% samanborið við 41,7% árið 2015. Útgjöld hins opinbera voru 1.103,8 milljarðar króna 2016 eða 45,1% af landsframleiðslu ársins samanborið við 42,5% árið 2015.

Hrein peningaleg eign hins opinbera var neikvæð um 847,1 milljarð króna í árslok 2016 eða um 34,6% af vergri landsframleiðslu. Hrein peningaleg eign hins opinbera hefur batnað um 230,5 milljarða króna frá því í árslok 2015. Peningalegar eignir námu 1.282,2 milljörðum króna og heildarskuldir 2.129,3 milljörðum króna í árslok 2016.

Út eru komin Hagtíðindi um fjármál hins opinbera árið 2016. Í því má finna talnalegt yfirlit um helstu þætti opinberra fjármála, þ.e. ríkis, sveitarfélaga og almannatrygginga. Áherslan er fyrst og fremst á hið opinbera en samsvarandi upplýsingar um undirgeira þess er að finna á vefsíðu Hagstofunnar.

Fjármál hins opinbera 2016, endurskoðun - Hagtíðindi

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang opinberfjarmal@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.