FRÉTT FJÁRMÁL HINS OPINBERA 13. SEPTEMBER 2016

Tekjuafkoma hins opinbera var neikvæð um 18,5 milljarða króna árið 2015 eða 0,8% af landsframleiðslu. Til samanburðar var afkoman neikvæð um 1,2 milljarða króna árið 2014 eða 0,1% af lands­framleiðslu.

Tekjur hins opinbera námu um 931 milljarði króna og jukust um 2,6% milli ára. Sem hlutfall af lands­framleiðslu mældust þær 42,1% samanborið við 45,2% árið 2014. Útgjöld hins opinbera voru 949 milljarðar króna 2015 eða 4,5% meiri en 2014 en hlutfall þeirra af landsframleiðslu fór úr 45,3% í 42,9%.

Samkvæmt áætlun út frá greiðslutölum voru peningalegar eignir hins opinbera 51,6% af landsframleiðslu í árslok 2015 meðan áætlað er að heildarskuldir hins opinbera hafi verið 99,7%. Er þetta fjórða árið í röð þar sem hlutfall skulda hins opinbera fer lækkandi.

Út eru komin Hagtíðindi um fjármál hins opinbera árið 2015. Í því má finna talnalegt yfirlit um helstu þætti opinberra fjármála, þ.e. ríkis, sveitarfélaga og almannatrygginga. Áherslan er fyrst og fremst á hið opinbera en samsvarandi upplýsingar um undirgeira þess er að finna á vefsíðu Hagstofunnar.

Fjármál hins opinbera 2015 — endurskoðun  - Hagtíðindi

Talnaefni

 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang opinberfjarmal@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.