FRÉTT FJÁRMÁL HINS OPINBERA 15. SEPTEMBER 2015

Tekjuafkoma hins opinbera var neikvæð um 1,2 milljarða króna árið 2014 eða sem nemur 0,1% af landsframleiðslu. Til samanburðar var tekjuafkoman neikvæð um 34,8 milljarða króna árið 2013 eða 1,9% af landsframleiðslu.

Tekjur hins opinbera námu 907,0 milljörðum króna og jukust um 111,3 milljarða króna milli ára eða um 14,0%. Sem hlutfall af landsframleiðslu mældust þær 45,6%. Útgjöld hins opinbera voru 908,2 milljarðar króna og jukust um 9,4% en hlutfall þeirra af landsframleiðslu var 45,7%.

Hrein peningaleg eign hins opinbera var neikvæð um 1.000 milljarða króna árið 2014 eða 50,3% af landsframleiðslu og er það 30 milljörðum verri staða en 2013. Peningalegar eignir voru 1.291 milljarður og heildarskuldir 2.291 milljarður króna í árslok 2014.

Út eru komin Hagtíðindi í efnisflokknum þjóðhagsreikningar um fjármál hins opinbera árið 2014. Í því má finna talnalegt yfirlit um helstu þætti opinberra fjármála, þ.e. ríkis, sveitarfélaga og almannatrygginga. Áherslan er fyrst og fremst á hið opinbera en samsvarandi upplýsingar um undirgeira þess er að finna á vefsíðu Hagstofunnar.

Fjármál hins opinbera 2014, endurskoðun - Hagtíðindi

Talnaefni (sjá Fjárhagur hins opinbera)

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang opinberfjarmal@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.