FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 08. MAÍ 2020

Tilraunatölfræði

Vinsamlegast athugið að þessari fréttatilkynningu var breytt 13. maí 2020 kl. 12:00 frá upprunalegri útgáfu. Fjöldi gistinátta í apríl 2019 misritaðist og hefur verið leiðréttur.

Gistinætur á hótelum í apríl voru 7.900 samkvæmt bráðabirgðatölum samanborið við 272.600 gistinætur í apríl 2019. Rúmanýting var um 1,8% samanborið við 41,6% í sama mánuði í fyrra. Augljóst er að miklar sviptingar hafa átt sér stað í hótelgeiranum og af 167 hótelum sem skráð eru hjá Hagstofunni hafa 69 tilkynnt lokun fyrir apríl.

Sjá nánar: Fyrsta mat á rúmanýtingu og fjölda gistinátta á hótelum í apríl

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1000 , netfang gistiskyrslur@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.