FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 18. SEPTEMBER 2025

Tekjur af erlendum ferðamönnum á öðrum ársfjórðungi 2025 námu rúmlega 166 milljörðum króna samanborið við 154,6 milljarða á öðrum ársfjórðungi 2024. Á 12 mánaða tímabili frá júlí 2024 til júní 2025 voru tekjur af erlendum ferðamönnum rúmlega 639,5 milljarðar króna samanborið við rúmlega 608 milljarða fyrir sama tímabil árinu áður.

Fjöldi starfandi í einkennandi greinum ferðaþjónustu á Íslandi voru 34.843 í júlí 2025 sem er 1% fleiri en voru í júlí 2024 þegar fjöldinn var 34.638. Á tólf mánaða tímabili frá ágúst 2024 til júlí 2025 störfuðu að jafnaði um 31.485 í einkennandi greinum ferðaþjónustu samanborið við 31.616 fyrir sama tímabil frá árinu áður.

Velta samkvæmt virðisaukaskattskýrslum í einkennandi greinum ferðaþjónustu á Íslandi nam rúmlega 187,6 milljörðum króna í maí til júní sem er um það bil 1% lækkun samanborið við sama tímabil 2024.

Gistinætur á hótelum í júlí 2025 voru 653.611 samanborið við 575.871 í júlí 2024. Frekari upplýsingar um gistinætur er að finna á vef Hagstofunnar undir flokknum Ferðaþjónusta.

Í ágúst voru 370.863 brottfarir farþega frá Keflavíkurflugvelli í samanburði við 333.802 í ágúst 2024. Brottfarir farþega með erlent ríkisfang voru 311.314 samanborið við 281.450 í ágúst 2024 sem er 11% fleiri farþegar.

Í þessari útgáfu skammtímahagvísa ferðaþjónustu eru birtar uppfærðar tölur um veltu samkvæmt virðisaukaskattskýrslum, gistinætur, þjónustuviðskipti við útlönd, fjölda starfandi skv. skrám, skráningar bílaleigubíla frá Samgöngustofu, umferð á hringveginum frá Vegagerðinni og fjölda farþega frá Ferðamálastofu út frá þjóðernum auk talna um farþegaflutninga og flughreyfingar frá ISAVIA.














Talnaefni
Hagvísar í ferðaþjónustu
Gistinætur
Tekjur af erlendum ferðamönnum
Starfandi samkvæmt skrám

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1000 , netfang gistiskyrslur@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.