FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 22. SEPTEMBER 2023

Tekjur af erlendum ferðamönnum á öðrum ársfjórðungi 2023 námu ríflega 160 milljörðum króna samanborið við 113 milljarða á öðrum ársfjórðungi 2022. Á 12 mánaða tímabili frá júlí 2022 til júní 2023 voru tekjur af erlendum ferðamönnum rúmlega 544 milljarðar króna samanborið við tæplega 332 milljarða fyrir sama tímabil árinu áður.

Fjöldi starfandi einstaklinga í einkennandi greinum ferðaþjónustu á Íslandi voru 35.614 í júlí 2023 sem er 9% aukning samanborið við júlí 2022. Á tólf mánaða tímabili frá ágúst 2022 til júlí 2023 störfuðu að jafnaði um 31.141 í einkennandi greinum ferðaþjónustu samanborið við 26.328 fyrir sama tímabil ári fyrr.

Velta samkvæmt viðrðisaukaskattskýrslum í einkennandi greinum ferðaþjónustu á Íslandi nam tæpum 181 milljarði króna í maí til júní sem er um það bil 29% aukning samanborið við sama tímabil 2022.

Gistinætur á hótelum í júlí 2023 voru 586.444 samanborið við 594.936 í júlí 2022. Gistinætur erlendra gesta voru 485.491 í júlí eða 1% færri en á sama tíma árið áður. Gistinætur Íslendinga voru 100.953, sem er 1% færri en í fyrra.

Í ágúst voru 326.782 brottfarir farþega frá Keflavíkurflugvelli í samanburði við 291.134 í ágúst 2022. Brottfarir farþega með erlent ríkisfang voru 281.514 samanborið við 242.670 í ágúst í fyrra.

Í þessari útgáfu skammtímahagvísa ferðaþjónustu eru birtar uppfærðar tölur um veltu samkvæmt virðisaukaskattskýrslum, gistinætur, þjónustuviðskipti við útlönd, fjölda starfandi skv. skrám, skráningar bílaleigubíla frá Samgöngustofu, umferð á hringveginum frá Vegagerðinni og fjölda farþega frá Ferðamálastofu út frá þjóðernum auk talna um farþegaflutninga og flughreyfingar frá ISAVIA.

















Taflan á pdf

Talnaefni
Hagvísar í ferðaþjónustu
Farþegar um Keflavíkurflugvöll
Meðal dagleg umferð á stofnvegum eftir mánuðum
Tekjur af erlendum ferðamönnum

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1000 , netfang gistiskyrslur@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.