FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 22. SEPTEMBER 2022

Velta fyrir tímabilið maí til júní 2022 í einkennandi greinum ferðaþjónustu á Íslandi var rúmlega 139 milljarðar samkvæmt virðisaukaskattskýrslum sem er um það bil 150% meiri velta en á sama tímabili í fyrra þegar hún var rúmlega 56,3 milljarðar króna.

Gistinætur á hótelum í júlí voru rúmlega 599 þúsund samanborið við rúmlega 378 þúsund í júlí 2021. Gistinætur Íslendinga voru 103.290 í júlí, eða 16% færri en í júlí 2021 og gistinætur erlendra gesta voru 495.877 en voru 255.918 í júlí í fyrra, eða 94% fleiri en árið áður.

Fjöldi starfandi samkvæmt skrám í einkennandi greinum ferðaþjónustu á Íslandi var 32.434 í júlí 2022 sem er 31% aukning samanborið við júlí 2021. Á tólf mánaða tímabili frá ágúst 2021 til júlí 2022 störfuðu að jafnaði um 26.159 í einkennandi greinum ferðaþjónustu samanborið við 17.590 fyrir sama tímabil árið áður.

Í ágúst voru 292.155 brottfarir farþega frá Keflavíkurflugvelli samanboriðvið 172.415 í ágúst 2021. Brottfarir farþega með erlent ríkisfang voru 242.687 samanborið við 151.847 í ágúst í fyrra.

Í þessari útgáfu skammtímahagvísa ferðaþjónustu eru birtar uppfærðar tölur um gistinætur, veltu samkvæmt virðisaukaskattskýrslum, skráningar bílaleigubíla frá Samgöngustofu, fjölda starfandi skv. skrám og fjölda farþega frá Ferðamálastofu út frá þjóðerni auk talna um farþegaflutninga og flughreyfingar frá ISAVIA.

Upplýsingar um umferð á hringveginum frá Vegagerðinni hafa ekki verið uppfærðar. Hagstofan gefur ekki lengur út áætlun út frá fyrstu skilum fyrir gistinætur á hótelum.

















Tafla á pdf

Talnaefni
Gistinætur
Hagvísar í ferðaþjónustu

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1000 , netfang gistiskyrslur@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.