FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 15. SEPTEMBER 2021

Tekjur af erlendum ferðamönnum á öðrum ársfjórðungi 2021 námu 30 milljörðum króna samanborið við 7,8 milljarða á sama tímabili árið á undan. Á tólf mánaða tímabili frá júlí 2020 til júní 2021 voru tekjur af erlendum ferðamönnum 79,1 milljarður króna samanborið við 333 milljarða á tólf mánaða tímabili ári fyrr.

Velta í einkennandi greinum ferðaþjónustu á Íslandi var 55,5 milljarðar króna í maí til júní 2021 samkvæmt virðisaukaskattskýrslum sem er 49% meiri velta en á sama tímabili á síðasta ári.

Í ágúst voru 172.415 brottfarir farþega frá Keflavíkurflugvelli í samanburði við 71.729 í ágúst 2020. Brottfarir farþega með erlent ríkisfang voru 151.847 samanborið við 63.762 í ágúst í fyrra.

Áætlaðar gistinætur á hótelum í ágúst voru um 413 þúsund sem er 134% aukning borið saman við ágúst 2020 þegar gistinætur á hótelum voru 176.711. Gistinætur Íslendinga voru 65.500, eða 50% færri en í ágúst 2020 og gistinætur erlendra gesta 347.800, en voru 44.523 í sama mánuði í fyrra eða hafa næstum því sjöfaldast.

Í þessari útgáfu skammtímahagvísa ferðaþjónustu eru birtar uppfærðar tölur um gistinætur, þjónustuviðskipti við útlönd, fjölda starfandi skv. skrám, skráningar bílaleigubíla frá Samgöngustofu, umferð frá Vegagerðinni og fjölda farþega frá Ferðamálastofu út frá þjóðernum auk talna um fjölda farþega frá ISAVIA.

Skammtímahagvísar ferðaþjónustu september 2021 Júlí  Ágúst - júlí  
Gistinætur 2020 2021   2019-2020 2020-2021  
Gistinætur alls¹837.4321.094.68631%6.064.9572.977.931 -51%
Hótel & gistiheimili369.110560.74752%4.094.5611.692.224 -59%
Aðrar tegundir skráðra gististaða2468.322533.93914%1.970.3961.285.707 -35%
  Júlí  Ágúst - júlí  
Framboð og nýting hótelherbergja 2020 2021 % 2019-2020 2020-2021  
Gistinætur á hótelum226.413378.02767%3.176.7761.163.676 -63%
Framboð hótelherbergja8.4429.73815%....  
Nýting48%69%22%50%24% -25
  Ágúst  September - ágúst  
Tilraunatölfræði - Gistinætur á hótelum 2020 2021 (áætlað)   2019-2020 2020-2021  
Gistinætur á hótelum176.711413.300134%2.830.5421.400.265 -51%
– Íslendingar132.18865.500-50%581.888580.248 0%
– Útlendingar44.523347.800681%2.248.654820.017 -64%
  2. ársfjórðungar  3. ársfjórðungur - 2. ársfjórðungs  
Þjónustuviðskipti við útlönd (milljónir króna) 2020 2021 % 2019-2020 2020-2021 %
Tekjur af erlendum ferðamönnum7.83530.082284%333.12279.147 -76%
– Farþegaflutningar með flugi1.0293.929282%100.40011.869 -88%
– Neysla / Ferðalög6.80626.153284%232.72267.278 -71%
  Maí - júní  Júlí - júní  
Velta samkvæmt virðisaukaskattskýrslum3 (m. króna) 2020 2021   2019-2020 2020-2021  
Einkennandi greinar ferðaþjónustu á Íslandi37.18555.45249%496.577236.466 -52%
– Farþegaflutningar með flugi13.80614.9829%179.15977.292 -57%
– Þjónustustarfsemi tengd flutningum með flugi4581.337192%15.0604.769 -68%
– Rekstur gististaða3.7928.502124%76.48630.582 -60%
– Veitingasala og -þjónusta11.90515.25028%82.01068.610 -16%
– Leiga á tómstunda-, íþróttavörum og vélknúnum ökutækjum5.1876.66128%40.86631.050 -24%
– Ferðaskrifstofur og skipuleggjendur (erlendis)394661081%11.6721.426 -88%
– Ferðaskrifstofur og skipuleggjendur (á Íslandi)1.1305.820415%55.81414.025 -75%
– Nuddstofur, sólbaðsstofur, gufuböð o.þ.h.3141.119257%15.1353.584 -76%
– Farþegaflutningar á landi437890104%16.4253.583 -78%
– Farþegaflutningar á sjó, vötnum og ám116425266%3.9491.546 -61%
  Júní  Meðalfjöldi júlí - júní  
Fjöldi starfandi skv. skrám 2020 2021   2019 - 2020 2020 - 2021  
Einkennandi greinar ferðaþjónustu18.08618.1240%270.641173.812 -36%
– Flutningar með flugi3.8062.567-33%50.87429.106 -43%
– Rekstur gististaða4.3684.5875%75.66238.073 -50%
– Veitingasala og -þjónusta8.0989.18913%111.64691.287 -18%
– Ferðaskrifstofur, -skipuleggjendur ogbókunarþjónusta1.8141.781-2%32.45915.346 -53%
  September  Meðalfjöldi október - september  
Bílaleigubílar4 2020 2021   2019-2020 2020-2021  
Bílaleigubílar alls19.74719.8380%22.72818.046 -21%
Bílaleigubílar í umferð17.18619.17412%19.38014.626 -25%
Bílaleigubílar úr umferð2.561664-74%3.3483.420 2%
  Ágúst  September - ágúst  
Umferð á hringveginum5 2020 2021   2019-2020 2020-2021  
Suðurland15.94818.98919%153.734148.770 -3%
Vesturland17.75319.61310%154.656155.416 0%
Norðurland11.96013.53513%86.96987.775 1%
Austurland2.9063.80931%22.05922.652 3%
  Ágúst  September - ágúst  
Talning farþegar úr landi6 2020 2021   2019-2020 2020-2021  
Farþegar í gegnum Keflavíkurflugvöll71.679172.415141%1.192.211462.195 -61%
– Erlent ríkisfang63.762151.847138%880.764363.952 -59%
– Íslenskt ríkisfang7.91720.568160%311.44798.243 -68%
  Ágúst  September - ágúst  
Umferð í gegnum Keflavíkurflugvöll7 2020 2021   2019-2020 2020-2021  
Heildarfarþegahreyfingar134.108414.576209%3.376.9491.095.459 -68%
– Brottfarir71.729172.415140%1.371.465462.550 -66%
– Komur59.145169.155186%1.339.157484.910 -64%
– Skiptifarþegar (Skiptifarþegar eru taldir tvisvar)3.23473.0062157%666.327147.999 -78%

Taflan á pdf

1 Gisting greidd í gegnum vefsíður á borð við Airbnb og óskráðar gistinætur ekki meðtaldar í samtölum yfir 12 mánaða tímabil.
2 Aðrar tegundir skráðra gististaða eru tjaldsvæði, farfuglaheimili, orlofshús, skálar í óbyggðum, íbúðagisting, svefnpokagististaðir og heimagististaðir.
3 Ferðaskrifstofur og skipuleggjendur (erlendis): Þjónusta sem veitt er í sambandi við ferðalög erlendis, þ.e. er undanþegin virðisaukaskatti skv. 12. grein laga um virðisaukaskatt (nr. 50/1988). Ferðaskrifstofur og skipuleggjendur (á Íslandi): Þjónusta sem veitt er í sambandi við ferðalög á Íslandi, þ.e. er ekki undanþegin virðisaukaskatti skv. 12. grein laga um virðisaukaskatt (nr. 50/1988).
4 Skv. gögnum frá Samgöngustofu. Fjöldi er tekin fyrsta virka dag hvers mánaðar.
5 Skv. talningu frá Vegagerðinni í gegnum 14 lykilteljara á hringveginum. Mánaðartölur sýna meðalfjölda talninga á dag í hverjum mánuði. Árstímabil sýnir heildartalningar yfir árið.
6 Skv. gögnum frá Ferðamálastofu.
7 Skv. gögnum frá ISAVIA, farþegahreyfingar telja brottfarir, komur og skiptifarþega sem eru tvítaldir.

Talanefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1000 , netfang gistiskyrslur@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.