Fjöldi starfandi í einkennandi greinum ferðaþjónustu á Íslandi var 35.031 í ágúst 2025 sem er svipað og í ágúst 2024 þegar fjöldinn var 34.730. Á tólf mánaða tímabili frá september 2024 til ágúst 2025 störfuðu að jafnaði um 31.530 í einkennandi greinum ferðaþjónustu samanborið við 31.583 fyrir sama tímabil frá árinu áður.
Gistinætur á hótelum í ágúst 2025 voru 667.044 samanborið við 608.748 í ágúst á síðasta ári. Gistinætur erlendra gesta voru 616.048 í ágúst eða 12% fleiri en á sama tíma árið áður. Gistinætur Íslendinga voru 50.996, 13,6% færri en í ágúst 2024. Frekari upplýsingar um gistinætur er að finna á vef Hagstofunnar undir flokknum Ferðaþjónusta.
Í september voru 283.566 brottfarir farþega frá Keflavíkurflugvelli í samanburði við 274.810 í september 2024. Brottfarir farþega með erlent ríkisfang voru 224.111 samanborið við 223.025 í september 2024 sem er svipaður fjöldi farþega á milli ára.
Í þessari útgáfu skammtímahagvísa ferðaþjónustu eru birtar uppfærðar tölur um gistinætur, fjölda starfandi skv. skrám, umferð á hringveginum frá Vegagerðinni og fjölda farþega frá Ferðamálastofu út frá þjóðernum auk talna um farþegaflutninga og flughreyfingar frá ISAVIA.
Talnaefni
Hagvísar í ferðaþjónustu
Gistinætur
Starfandi samkvæmt skrám