FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 19. OKTÓBER 2023

Gistinætur á hótelum í ágúst 2023 voru 599.247 samanborið við 597.794 í ágúst 2022. Gistinætur erlendra gesta voru 504.012 í ágúst eða 2% fleiri en á sama tíma árið áður. Gistinætur Íslendinga voru 95.235, 10% færri en í fyrra.

Í september voru 268.355 brottfarir farþega frá Keflavíkurflugvelli í samanburði við 237.270 í september 2022. Brottfarir farþega með erlent ríkisfang voru 221.603 samanborið við 176.988 í september í fyrra.

Í þessari útgáfu skammtímahagvísa ferðaþjónustu eru birtar uppfærðar tölur um gistinætur, skráningar bílaleigubíla frá Samgöngustofu, umferð á hringveginum frá Vegagerðinni og fjölda farþega frá Ferðamálastofu út frá þjóðernum auk talna um farþegaflutninga og flughreyfingar frá ISAVIA.











Taflan á pdf

Talnaefni
Hagvísar í ferðaþjónustu
Farþegar um Keflavíkurflugvöll
Meðal dagleg umferð á stofnvegum eftir mánuðum
Tekjur af erlendum ferðamönnum

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1000 , netfang gistiskyrslur@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.