FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 16. NÓVEMBER 2023

Fjöldi starfandi í einkennandi greinum ferðaþjónustu á Íslandi var 34.411 í september 2023 sem er 7% aukning samanborið við september 2022. Á tólf mánaða tímabili frá október 2022 til september 2023 störfuðu að jafnaði um 31.601 í einkennandi greinum ferðaþjónustu samanborið við 27.459 fyrir sama tímabil ári fyrr.

Metárið 2019 komu 190 skemmtiferðaskip til Faxaflóahafna en árið 2022 voru þau 184.

Velta samkvæmt virðisaukaskattskýrslum í einkennandi greinum ferðaþjónustu á Íslandi nam tæpum 229 milljörðum króna í júlí til ágúst sem er um það bil 15% aukning samanborið við sama tímabil 2022.

Gistinætur á hótelum í september 2023 voru 520.872 samanborið við 491.800 í september 2022. Gistinætur erlendra gesta voru 435.567 í september eða 9% fleiri en á sama tíma árið áður. Gistinætur Íslendinga voru 85.305, 8% færri en í fyrra.

Í október voru 260.912 brottfarir farþega frá Keflavíkurflugvelli í samanburði við 230.323 í október 2022. Brottfarir farþega með erlent ríkisfang voru 204.966 samanborið við 158.787 í október í fyrra.

Í þessari útgáfu skammtímahagvísa ferðaþjónustu eru birtar uppfærðar tölur um veltu samkvæmt virðisaukaskattskýrslum, gistinætur, fjölda starfandi skv. skrám, skráningar bílaleigubíla frá Samgöngustofu, umferð á hringveginum frá Vegagerðinni og fjölda farþega frá Ferðamálastofu út frá þjóðernum auk talna um farþegaflutninga og flughreyfingar frá ISAVIA.












Talnaefni
Hagvísar í ferðaþjónustu
Farþegar um Keflavíkurflugvöll
Meðal dagleg umferð á stofnvegum eftir mánuðum
Tekjur af erlendum ferðamönnum

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1000 , netfang gistiskyrslur@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.