FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 16. MARS 2023

Tekjur af erlendum ferðamönnum á fjórða ársfjórðungi 2022 námu 95,7 milljörðum króna samanborið við 59,2 milljörðum á fjórða ársfjórðungi 2021. Árið 2022 voru tekjur af erlendum ferðamönnum tæplega 448 milljarðar króna samanborið við 203,2 milljarða árið 2021.

Velta fyrir tímabilið nóvember til desember 2022 í einkennandi greinum ferðaþjónustu á Íslandi var tæplega 115 milljarðar króna samkvæmt virðisaukaskattskýrslum sem er um það bil 38% meiri velta en á sama tímabili í fyrra þegar hún var í kringum 83,5 milljarða króna.

Gistinætur á hótelum í janúar 2023 voru um 312 þúsund samanborið við 161,6 þúsund í janúar árið á undan. Gistinætur Íslendinga voru 57.741 í janúar, eða 58% fleiri en í janúar 2022, og gistinætur erlendra gesta voru 254.282 en voru 125.069 í janúar í fyrra eða rúmlega tvöfalt fleiri en árinu áður.

Í febrúar voru 176.036 brottfarir farþega frá Keflavíkurflugvelli í samanburði við 103.815 í febrúar 2022. Brottfarir farþega með erlent ríkisfang voru 137.077 samanborið við 75.830 í febrúar í fyrra.

Í þessari útgáfu skammtímahagvísa ferðaþjónustu eru birtar uppfærðar tölur um gistinætur, þjónustuviðskipti við útlönd, veltu samkvæmt virðisaukaskattskýrslum, skráningar bílaleigubíla frá Samgöngustofu, umferð á hringveginum frá Vegagerðinni og fjölda farþega frá Ferðamálastofu út frá þjóðernum auk talna um farþegaflutninga og flughreyfingar frá ISAVIA.












Tafla á pdf

Talnaefni
Hagvísar í ferðaþjónustu
Farþegar um Keflavíkurflugvöll
Meðal dagleg umferð á stofnvegum eftir mánuðum

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1260 , netfang fyrirtaekjatolfraedi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.