FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 17. MAÍ 2023

Velta fyrir tímabilið janúar til febrúar 2023 í einkennandi greinum ferðaþjónustu á Íslandi var tæplega 100 milljarðar króna samkvæmt virðisaukaskattskýrslum sem er um það bil 64% meiri velta en á sama tímabili í fyrra þegar hún var í kringum 60,5 milljarðar króna.

Gistinætur á hótelum í mars 2023 voru 423.423 samanborið við tæplega 326 þúsund í mars 2022. Gistinætur erlendra gesta voru 346 þúsund eða 35% fleiri en á sama tíma árið áður. Gistinætur Íslendinga voru ríflega 77 þúsund sem er um 11% aukning frá fyrra ári.

Fjöldi starfandi í einkennandi greinum ferðaþjónustu á Íslandi voru 29.159 í mars 2023 sem er 18% aukning samanborið við mars 2022. Á tólf mánaða tímabili frá apríl 2022 til mars 2023 störfuðu að jafnaði um 29.909 í einkennandi greinum ferðaþjónustu samanborið við 22.993 fyrir sama tímabil ári fyrr.

Í apríl voru 198.333 brottfarir farþega frá Keflavíkurflugvelli í samanburði við 160.103 í apríl 2022. Brottfarir farþega með erlent ríkisfang voru 142.180 samanborið við 102.228 í apríl í fyrra.

Í þessari útgáfu skammtímahagvísa ferðaþjónustu eru birtar uppfærðar tölur um gistinætur, veltu samkvæmt virðisaukaskattskýrslum, fjölda starfandi skv. skrám, skráningar bílaleigubíla frá Samgöngustofu, umferð á hringveginum frá Vegagerðinni og fjölda farþega frá Ferðamálastofu út frá þjóðernum auk talna um farþegaflutninga og flughreyfingar frá ISAVIA.












Tafla á pdf

Talnaefni
Hagvísar í ferðaþjónustu
Farþegar um Keflavíkurflugvöll
Meðal dagleg umferð á stofnvegum eftir mánuðum

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1000 , netfang gistiskyrslur@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.