Tekjur af erlendum ferðamönnum á fyrsta ársfjórðungi 2025 námu 108,5 milljörðum króna samanborið við 103,8 milljarða á fyrsta ársfjórðungi 2024. Á 12 mánaða tímabili frá apríl 2024 til mars 2025 voru tekjur af erlendum ferðamönnum 623,8 milljarðar króna samanborið við 612,9 milljarða fyrir sama tímabil árinu áður.
Fjöldi starfandi í einkennandi greinum ferðaþjónustu á Íslandi voru 29.741 í apríl 2025 sem er 1% samdráttur samanborið við apríl 2024. Á tólf mánaða tímabili frá maí 2024 til apríl 2025 störfuðu að jafnaði um 31.407 í einkennandi greinum ferðaþjónustu samanborið við 31.721 fyrir sama tímabil frá árinu áður.
Gistinætur á hótelum í apríl 2025 voru 369.411 samanborið við 331.880 í apríl 2024. Frekari upplýsingar um gistinætur er að finna á vef Hagstofunnar undir flokknum Ferðaþjónusta.
Í maí voru 226.257 brottfarir farþega frá Keflavíkurflugvelli í samanburði við 210.872 í maí 2024. Brottfarir farþega með erlent ríkisfang voru 159.384 samanborið við 157.366 í maí 2024.
Í þessari útgáfu skammtímahagvísa ferðaþjónustu eru birtar uppfærðar tölur um þjónustuviðskipti við útlönd, gistinætur, fjölda starfandi skv. skrám, skráningar bílaleigubíla frá Samgöngustofu, umferð á hringveginum frá Vegagerðinni og fjölda farþega frá Ferðamálastofu út frá þjóðernum auk talna um farþegaflutninga og flughreyfingar frá ISAVIA.
Talnaefni
Hagvísar í ferðaþjónustu
Gistinætur
Tekjur af erlendum ferðamönnum
Starfandi samkvæmt skrám