FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 15. JÚNÍ 2023

Tekjur af erlendum ferðamönnum á fyrsta ársfjórðungi 2023 námu 94,3 milljörðum króna samanborið við 52,4 milljarða á fyrsta ársfjórðungi 2022. Á 12 mánaða tímabili frá apríl 2022 til mars 2023 voru tekjur af erlendum ferðamönnum tæplega 490 milljarðar króna samanborið við 248 milljarða fyrir sama tímabil árinu áður.

Gistinætur á hótelum í apríl 2023 voru 366.703 samanborið við 292.482 í apríl 2022. Gistinætur erlendra gesta voru um það bil 293,4 þúsund eða 36% fleiri en á sama tíma árið áður. Gistinætur Íslendinga voru ríflega 73 þúsund sem er um 5% samdráttur á milli ára.

Fjöldi starfandi í einkennandi greinum ferðaþjónustu á Íslandi voru 29.933 í apríl 2023 sem er 14% aukning samanborið við apríl 2022. Á tólf mánaða tímabili frá maí 2022 til apríl 2023 störfuðu að jafnaði um 30.248 í einkennandi greinum ferðaþjónustu samanborið við 23.893 fyrir sama tímabil ári fyrr.

Í maí voru 219.827 brottfarir farþega frá Keflavíkurflugvelli í samanburði við 170.015 í maí 2022. Brottfarir farþega með erlent ríkisfang voru 158.312 samanborið við 107.603 í apríl í fyrra.

Í þessari útgáfu skammtímahagvísa ferðaþjónustu eru birtar uppfærðar tölur um gistinætur, þjónustuviðskipti við útlönd, fjölda starfandi skv. skrám, skráningar bílaleigubíla frá Samgöngustofu, umferð á hringveginum frá Vegagerðinni og fjölda farþega frá Ferðamálastofu út frá þjóðernum auk talna um farþegaflutninga og flughreyfingar frá ISAVIA.






Tafla á pdf

Talnaefni
Hagvísar í ferðaþjónustu
Farþegar um Keflavíkurflugvöll
Meðal dagleg umferð á stofnvegum eftir mánuðum
Tekjur af erlendum ferðamönnum

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1260 , netfang fyrirtaekjatolfraedi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.