Fjöldi starfandi í einkennandi greinum ferðaþjónustu á Íslandi voru 32.365 í maí 2025 sem er 1% aukning frá því í maí 2024. Á tólf mánaða tímabili frá júní 2024 til maí 2025 störfuðu að jafnaði um 31.437 í einkennandi greinum ferðaþjónustu samanborið við 31.706 fyrir sama tímabil frá árinu áður.
Velta samkvæmt virðisaukaskattskýrslum í einkennandi greinum ferðaþjónustu á Íslandi nam 138,8 milljörðum króna í mars til apríl 2025 sem er um það bil 7% aukning samanborið við sama tímabil 2024. Breyting á 12 mánaða tímabili frá maí 2024 til apríl 2025 er 5% aukning miðað við sama tímabil árinu áður.
Gistinætur á hótelum í maí 2025 voru 430.841 samanborið við 487.649 í maí 2024. Frekari upplýsingar um gistinætur er að finna á vef Hagstofunnar undir flokknum Ferðaþjónusta.
Í júní voru 305.682 brottfarir farþega frá Keflavíkurflugvelli í samanburði við 277.672 í júní 2024. Brottfarir farþega með erlent ríkisfang voru 233.867 (+10%) samanborið við 212.391 í júní 2024.
Í þessari útgáfu skammtímahagvísa ferðaþjónustu eru birtar uppfærðar tölur um veltu samkvæmt virðisaukaskattskýrslum, gistinætur, fjölda starfandi skv. skrám, skráningar bílaleigubíla frá Samgöngustofu, umferð á hringveginum frá Vegagerðinni og fjölda farþega frá Ferðamálastofu út frá þjóðernum auk talna um farþegaflutninga og flughreyfingar frá ISAVIA.
Talnaefni
Hagvísar í ferðaþjónustu
Gistinætur
Tekjur af erlendum ferðamönnum
Starfandi samkvæmt skrám