FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 14. JÚLÍ 2020

Samkvæmt tilraunatölfræði gistinátta er áætlað að gistinætur á hótelum í júní hafi dregist saman um 79% og fækkað úr 420 þúsund í 90 þúsund samanborið við júní í fyrra.

Í maí fækkaði skráðum gistinóttum um 87%, úr 570 þúsund í tæplega 76 þúsund, samanborið við maí í fyrra. Þar af drógust gistinætur á hótelum saman um 88%, úr 315 þúsund í 37 þúsund. Nýting hótelherbergja lækkaði um 47 prósentustig, úr 56% í maí í fyrra niður í 9% síðastliðinn maí. Framboð hótelherbergja dróst einnig saman í kjölfar þess að 47 hótel höfðu lokað í maí. Framboð herbergja lækkaði því um 26%, úr tæplega 11 þúsund herbergjum niður í tæplega 8 þúsund.

Í júní fækkaði brottfararfarþegum um 95,7% samanborið við sama mánuð í fyrra, úr 259 þúsund í rúmlega 11 þúsund. Séu síðustu 12 mánuðir bornir saman við sama tímabil árið áður hefur farþegum fækkað úr rúmlega 2,9 milljónum í rúmlega 1,8 milljónir, eða um 35%.

Bílaleigubílar í umferð voru 15.600 talsins í júlí og fækkaði þeim um 37% samanborið við sama mánuð síðasta árs. Séu síðustu 12 mánuðir bornir saman við sama tímabil í fyrra hefur heildarfjöldi bílaleigubíla dregist saman úr 25 þúsund í 23 þúsund, eða 8%, á meðan fjöldi bílaleigubíla í umferð hefur dregist saman um 15%, úr 23.500 í 20.000.

Í þessari útgáfu skammtímahagvísa ferðaþjónustu eru birtar uppfærðar tölur um gistinætur. Auk þess eru birtar uppfærðar tölur um bílaleigubíla frá Samgöngustofu, umferðatölur frá Vegagerðinni, talningu farþega til landsins samkvæmt talningu Ferðamálastofu og tölur um farþega- og flughreyfingar frá ISAVIA.

Skammtímahagvísar ferðaþjónustu Maí  Júní - maí 
Gistinætur20192020 %2018-20192019-2020%
Gistinætur alls (fyrir utan óskráðar gistinætur)570.56075.789-87%8.466.0757.206.001-15%
Hótel & gistiheimili414.04851.300-88%5.772.5534.875.323-16%
Gisting greidd gegnum vefsíður á borð við Airbnb8.... .... 
Óskráðar gistinætur (bíla- og innigisting).... .... 
Aðrar tegundir skráðra gististaða1156.51224.489-84%2.693.5222.330.678-13%
  Maí  Júní - maí 
Framboð og nýting hótelherbergja20192020 %2018-20192019-2020 %
Gistinætur315.01537.094-88%4.441.7123.787.526-15%
Framboð hótelherbergja10.7317.888-26%123.306123.3620%
Nýting56%9%-4766%54%-12
  Júní 
Tilraunatölfræði gistinátta 2019 (raun)   2020 (áætlað) %
Gistinætur á hótelum 420.300   90.000 -79%
  1. ársfjórðungur  2. ársfjórðungur - 1. ársfjórðungs
Þjónustujöfnuður (milljónir króna)20192020 %2018-20192019-2020 %
Tekjur af erlendum ferðamönnum92.88066.692-28%518.128443.678-14%
- Flug26.77219.951-25%176.325132.368-25%
- Neysla / Ferðalög66.10846.741-29%341.803311.311-9%
  Janúar - febrúar  Mars - febrúar 
Velta samkvæmt virðisaukaskattskýrslum2 (m. kró20192020 %2018-20192019-2020 %
Velta alls79.90571.994-10%676.031608.010-10%
- Farþegaflutningar með flugi30.58126.589-13%279.947224.227-20%
- Rekstur gististaða11.03410.848-2%101.80298.590-3%
- Veitingasala og -þjónusta13.75513.587-1%100.29299.8560%
- Bílaleigur5.8034.822-17%51.09147.097-8%
- Ferðaskrifstofur og skipuleggjendur (erlendis)1.9322.17913%16.82916.7800%
- Ferðaskrifstofur og skipuleggjendur (á Íslandi)12.98710.810-17%97.27695.095-2%
- Farþegaflutningar á landi3.4892.925-16%23.36221.213-9%
- Farþegaflutningar á sjó, vötnum og ám323233-28%5.4305.152-5%
  Febrúar  Meðalfjöldi launþega mars - febrúar
Launþegar320192020 %2018-20192019-2020 %
Launþegar alls25.90023.500-9%29.00026.800-8%
- Farþegaflutningar með flugi4.8003.600-25%5.4004.200-21%
- Rekstur gististaða5.9005.800-3%7.0006.900-2%
- Veitingasala og -þjónusta9.8009.200-7%10.70010.000-6%
- Ferðaskrifstofur og ferðaskipuleggjendur3.6003.200-9%3.9003.800-3%
- Aðrar atvinnugreinar tengdar ferðaþjónustu2.5002.400-6%2.8002.600-7%
  Júlí  Meðalfjöldi ágúst - júlí 
Bílaleigubílar420192020 %2018-20192019-2020 %
Bílaleigubílar alls25.64020.083-22%25.30923.168-8%
Bílaleigubílar í umferð24.94315.628-37%23.47919.953-15%
Bílaleigubílar úr umferð6974.455539%1.8313.10369%
  Júní  Júlí - júní 
Umferð á hringveginum520192020 %2018-20192019-2020 %
Suðurland19.60815.217-22%181.487159.010-12%
Vesturland19.38417.578-9%171.200157.554-8%
Norðurland12.3449.932-20%104.61890.653-13%
Austurland3.2152.104-35%27.57723.490-15%
  Júní  Júlí - júní 
Talning farþega úr landi20192020 %2018-20192019-2020 %
Farþegar í gegnum Keflavíkurflugvöll6259.70211.253-95,7%1.827.0942.840.64855,5%
- Erlent ríkisfang194.9125.943-97,0%399.009652.33363,5%
- Íslenskt ríkisfang64.7905.310-91,8%1.428.0842.188.31553,2%
  Júní  Júlí - júní 
Umferð í gegnum Keflavíkurflugvöll20192020 %2018-20192019-2020 %
Heildarfjöldi flughreyfinga8.3533.951-52,7%90.42768.777-23,9%
Heildarfarþegahreyfingar7787.75229.335-96,3%8.917.4714.799.284-46,2%
- Brottfarir258.87611.253-95,7%2.837.8851.838.598-35,2%
- Komur268.79917.682-93,4%2.823.3451.817.990-35,6%
- Skiptifarþegar (Skiptifarþegar eru taldir tvisvar)258.162420-99,8%3.251.3681.138.288-65,0%

Taflan á pdf

1 Aðrar tegundir skráðra gististaða eru tjaldsvæði, farfuglaheimili, orlofshús, skálar í óbyggðum, íbúðagisting, svefnpokagististaðir og heimagististaðir.
2 Ferðaskrifstofur og skipuleggjendur (erlendis): Þjónusta sem veitt er í sambandi við ferðalög erlendis, þ.e. er undanþegin virðisaukaskatti skv. 12. grein laga um virðisaukaskatt (nr. 50/1988). Ferðaskrifstofur og skipuleggjendur (á Íslandi): Þjónusta sem veitt er í sambandi við ferðalög á Íslandi, þ.e. er ekki undanþegin virðisaukaskatti skv. 12. grein laga um virðisaukaskatt (nr. 50/1988).
3 Tölur námundaðar að næsta hundraði.
4 Skv. gögnum frá Samgöngustofu.
5 Skv. talningu frá Vegagerðinni í gegnum 14 lykilteljara á hringveginum. Mánaðartölur sýna meðalfjölda talninga á dag í hverjum mánuði. Árstímabil sýnir heildartalningar yfir árið.
6 Skv. talningu frá Ferðamálastofu.
7 Farþegahreyfingar telja brottfarir, komur og skiptifarþega sem eru tvítaldir.
8 Tölur ekki reiknaðar fyrir apríl vegna ófullnægjandi gagna.

Talnaefni
Hagvísar í ferðaþjónustu
Tilraunatölfræði um gistinætur
Þjónustujöfnuður
Tekjur af erlendum ferðamönnum

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1260 , netfang fyrirtaekjatolfraedi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.