FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 19. JANÚAR 2023

Gistinætur á hótelum í nóvember 2022 voru um 353,5 þúsund samanborið við rúmlega 250,6 þúsund í nóvember árið á undan. Gistinætur Íslendinga voru 71.095 í nóvember, eða 25% fleiri en í nóvember 2021, og gistinætur erlendra gesta voru 282.429 en voru 193.892 í nóvember í fyrra eða 46% fleiri en árinu áður.

Fjöldi starfandi í einkennandi greinum ferðaþjónustu á Íslandi voru 30.298 í nóvember 2022 sem er 21% aukning samanborið við nóvember 2021. Á tólf mánaða tímabili frá desember 2021 til nóvember 2022 störfuðu að jafnaði um 28.269 í einkennandi greinum ferðaþjónustu samanborið við 20.014 fyrir sama tímabil árið áður.

Í desember voru 156.976 brottfarir farþega frá Keflavíkurflugvelli í samanburði við 97.588 í desember 2021. Brottfarir farþega með erlent ríkisfang voru 114.788 samanborið við 64.318 í desember í fyrra.

Í þessari útgáfu skammtímahagvísa ferðaþjónustu eru birtar uppfærðar tölur um gistinætur, fjölda starfandi skv. skrám, skráningar bílaleigubíla frá Samgöngustofu, umferð á hringveginum frá Vegagerðinni og fjölda farþega frá Ferðamálastofu út frá þjóðernum auk talna um farþegaflutninga og flughreyfingar frá ISAVIA.

Hagstofan gefur ekki lengur út áætlun út frá fyrstu skilum fyrir gistinætur á hótelum.











Tafla á pdf

Talnaefni
Gistinætur
Hagvísar í ferðaþjónustu

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1000 , netfang gistiskyrslur@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.