FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 20. JANÚAR 2021

Farþegum í gegnum Keflavíkurflugvöll fækkaði um 77% árið 2020 samanborið við árið áður. Í desember síðastliðnum voru tæplega 12 þúsund brottfarir frá flugvellinum sem er fækkun um 93% frá sama mánuði fyrra árs þegar þær voru tæplega 169 þúsund.

Áætlaðar gistinætur á hótelum í desember voru 25 þúsund samanborið við 307 þúsund í sama mánuði árið áður (-92%). Áætlaður fjöldi gistinótta fyrir árið 2020 hefur því dregist saman um 67% samanborið við árið 2019, úr 4,5 milljónum í 1,5 milljónir gistinótta. Íslenskum gistinóttum fjölgaði um 23% á árinu á meðan gistinóttum greiddum af erlendum einstaklingum fækkaði um 77%.

Velta einkennandi greina ferðaþjónustu dróst saman um 72% á tímabilinu september – október sé það borið saman við sama tímabil árið áður. Velta allra greina dróst saman á þessu tímabili á milli ára.

Í þessari útgáfu skammtímahagvísa ferðaþjónustu eru birtar uppfærðar tölur um gistinætur, veltu samkvæmt virðisaukaskattskyldum skrám og fjölda starfandi samkvæmt skrám. Auk þess eru birtar uppfærðar tölur um bílaleigubíla frá Samgöngustofu, umferðartölur frá Vegagerðinni og farþegatalningu Ferðamálastofu auk talna um farþega- og flughreyfingar frá ISAVIA.

Grafið sýnir fjölda brottfararfarþega á mánuði á árunum 2019 og 2020. Farþegum fækkaði um 77% á milli ára.

Skammtímahagvísar ferðaþjónustu janúar 2021 Nóvember  Desember - nóvember 
Gistinætur20192020 %2018-20192019-2020%
Gistinætur alls1477.43243.752-91%8.410.6523.361.192-60%
Hótel & gistiheimili389.31232.998-92%5.791.2322.268.394-61%
Gisting greidd gegnum vefsíður á borð við Airbnb.... .... 
Óskráðar gistinætur (bíla- og innigisting).... .... 
Aðrar tegundir skráðra gististaða288.12010.754-88%2.619.4201.092.798-58%
  Nóvember  Desember - nóvember 
Framboð og nýting hótelherbergja20192020 %2018-20192019-2020 %
Gistinætur329.59824.305-93%4.528.3011.774.817-61%
Framboð hótelherbergja10.9486.625-39%.... 
Nýting58%8%-5065%29%-36
  Desember  Janúar - desember 
Tilraunatölfræði - Gistinætur á hótelum2019 (raun) 2020 (áætlað)2019 (raun)2020 (áætlað) %
Gistinætur á hótelum307.18625.000-92%4.533.0651.492.631-67%
– Íslendingar32.20921.000-35%438.779540.08423%
– Útlendingar274.97724.000-91%4.094.286952.547-77%
  3. ársfjórðungur  4. ársfjórðungur - 3. ársfjórðungs 
Þjónustuviðskipti við útlönd (milljónir króna)20192020 %2018-20192019-2020 %
Tekjur af erlendum ferðamönnum168.93432.949-80%485.192197.140-59%
– Farþegaflutningur með flugi49.3854.563-91%147.85855.581-62%
– Neysla / Ferðalög119.54928.386-76%337.335141.559-58%
  September - október  Október - september 
Velta samkvæmt virðisaukaskattskýrslum3 (m. króna)20192020 %2018-20192019-2020 %
Einkennandi greinar ferðaþjónustu109.80031.101-72%642.978321.554-50%
– Farþegaflutningar með flugi41.1439.919-76%230.684112.475-51%
– Þjónustustarfsemi tengd flutningum með flugi3.743817-78%22.9798.013-65%
– Rekstur gististaða17.6963.482-80%101.00944.062-56%
– Veitingasala og -þjónusta15.5869.534-39%93.74871.592-24%
– Ferðaskrifstofur og skipuleggjendur (erlendis)3.304183-95%17.4555.164-70%
– Ferðaskrifstofur og skipuleggjendur (á Íslandi)12.7511.041-92%79.76326.544-67%
– Nuddstofur, sólbaðsstofur, gufuböð o.þ.h.3.458298-91%19.9988.759-56%
– Leiga á tómstundavörum, íþróttavörum og vélknúnum ökut7.7345.217-33%49.91234.336-31%
– Farþegaflutningar á landi3.425442-87%22.0438.897-60%
– Farþegaflutningar á sjó, vötnum og ám959169-82%5.3841.715-68%
  Október  Meðalfjöldi starfandi nóvember - október
Fjöldi starfandi skv. skrám20192020 %2018-20192019-2020 %
Einkennandi greinar ferðaþjónustu29.01415.802-46%30.27622.882-24%
– Flutningar með flugi4.4992.219-51%4.7383.636-23%
– Rekstur gististaða6.9362.854-59%6.9944.928-30%
– Veitingarekstur9.9677.171-28%10.2808.509-17%
– Ferðaskrifstofur, -skipuleggjendur ogbókunarþjónusta2.8451.047-63%2.9632.044-31%
  Janúar  Meðalfjöldi febrúar - janúar 
Bílaleigubílar420202021 %2019-20202020-2021 %
Bílaleigubílar alls24.35917.794-27%24.70220.830-16%
Bílaleigubílar í umferð22.53412.750-43%22.90216.674-27%
Bílaleigubílar úr umferð1.8255.044176%1.8004.281138%
  Desember  Janúar - desember 
Umferð á hringveginum520192020 %20192020 %
Suðurland10.5938.278-22%177.518137.821-22%
Vesturland10.1918.201-20%173.319142.266-18%
Norðurland4.3593.831-12%103.44077.189-25%
Austurland1.1561.000-13%27.12319.200-29%
  Desember  Janúar - desember 
Talning farþegar úr landi620192020 %20192020 %
Farþegar í gegnum Keflavíkurflugvöll168.85011.646-93%2.597.536608.693-77%
– Erlent ríkisfang125.4218.135-94%1.986.153478.510-76%
– Íslenskt ríkisfang43.4293.511-92%611.383130.183-79%
  Desember  Janúar - desember 
Umferð í gegnum Keflavíkurflugvöll720192020 %20192020 %
Heildarfjöldi flughreyfinga4.5542.251-51%85.92145.217-47%
Heildarfarþegahreyfingar453.93224.907-95%7.240.8191.373.969-81%
– Brottfarir168.91411.665-93%2.612.143609.337-77%
– Komur177.61811.947-93%2.607.637597.954-77%
– Skiptifarþegar (Skiptifarþegar eru taldir tvisvar)107.4001.295-99%2.021.039166.678-92%

Taflan á pdf

1 Gisting greidd í gegnum vefsíður á borð við Airbnb og óskráðar gistinætur ekki meðtaldar í samtölum yfir 12 mánaða tímabil.
2 Aðrar tegundir skráðra gististaða eru tjaldsvæði, farfuglaheimili, orlofshús, skálar í óbyggðum, íbúðagisting, svefnpokagististaðir og heimagististaðir.
3 Ferðaskrifstofur og skipuleggjendur (erlendis): Þjónusta sem veitt er í sambandi við ferðalög erlendis, þ.e. er undanþegin virðisaukaskatti skv. 12. grein laga um virðisaukaskatt (nr. 50/1988). Ferðaskrifstofur og skipuleggjendur (á Íslandi): Þjónusta sem veitt er í sambandi við ferðalög á Íslandi, þ.e. er ekki undanþegin virðisaukaskatti skv. 12. grein laga um virðisaukaskatt (nr. 50/1988).
4 Skv. gögnum frá Samgöngustofu. Fjöldi er tekin fyrsta virka dag hvers mánaðar.
5 Skv. talningu frá Vegagerðinni í gegnum 14 lykilteljara á hringveginum. Mánaðartölur sýna meðalfjölda talninga á dag í hverjum mánuði. Árstímabil sýnir heildartalningar yfir árið.
6 Skv. gögnum frá Ferðamálastofu.
7 Skv. gögnum frá ISAVIA, farþegahreyfingar telja brottfarir, komur og skiptifarþega sem eru tvítaldir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1000 , netfang gistiskyrslur@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.