FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 21. DESEMBER 2023

Tekjur af erlendum ferðamönnum á þriðja ársfjórðungi 2023 námu ríflega 223 milljörðum króna samanborið við tæplega 190 milljarða á þriðja ársfjórðungi 2022. Á 12 mánaða tímabili frá október 2022 til september 2023 voru tekjur af erlendum ferðamönnum 586,5 milljarðar króna samanborið við rúmlega 416 milljarða fyrir sama tímabil árinu áður.

Fjöldi starfandi í einkennandi greinum ferðaþjónustu á Íslandi var 32.244 í október 2023 sem er 7% aukning samanborið við október 2022. Á tólf mánaða tímabili frá nóvember 2022 til október 2023 störfuðu að jafnaði um 31.766 í einkennandi greinum ferðaþjónustu samanborið við 27.886 fyrir sama tímabil ári fyrr.

Velta samkvæmt virðisaukaskattskýrslum í einkennandi greinum ferðaþjónustu á Íslandi nam 169,3 milljörðum króna í september til október sem er um það bil 17% aukning samanborið við sama tímabil 2022.

Gistinætur á hótelum í október 2023 voru 493.189 samanborið við 469.902 í október 2022. Gistinætur erlendra gesta voru 409.705 í október eða 8% fleiri en á sama tíma árið áður. Gistinætur Íslendinga voru 83.484, 8% færri en í fyrra.

Í nóvember voru 193.788 brottfarir farþega frá Keflavíkurflugvelli í samanburði við 172.561 í nóvember 2022. Brottfarir farþega með erlent ríkisfang voru 150.346 samanborið við 138.193 í október í fyrra.

Í þessari útgáfu skammtímahagvísa ferðaþjónustu eru birtar uppfærðar tölur um veltu samkvæmt virðisaukaskattskýrslum, fjölda starfandi skv. skrám, þjónustuviðskipti við útlönd, gistinætur, skráningar bílaleigubíla frá Samgöngustofu, umferð á hringveginum frá Vegagerðinni og fjölda farþega frá Ferðamálastofu út frá þjóðernum auk talna um farþegaflutninga og flughreyfingar frá ISAVIA.














Talnaefni
Hagvísar í ferðaþjónustu
Farþegar um Keflavíkurflugvöll
Meðal dagleg umferð á stofnvegum eftir mánuðum
Tekjur af erlendum ferðamönnum

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1000 , netfang gistiskyrslur@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.