FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 15. DESEMBER 2022

Velta fyrir tímabilið september til október 2022 í einkennandi greinum ferðaþjónustu á Íslandi var tæplega 144 milljarðar króna samkvæmt virðisaukaskattskýrslum sem er um það bil 55% meiri velta en á sama tímabili í fyrra þegar hún var tæplega 93 milljarðar króna.

Fjöldi starfandi í einkennandi greinum ferðaþjónustu á Íslandi voru 29.990 í október 2022 sem er 19% aukning samanborið við október 2021. Á tólf mánaða tímabili frá nóvember 2021 til október 2022 störfuðu að jafnaði um 27.787 í einkennandi greinum ferðaþjónustu samanborið við 19.219 fyrir sama tímabil árið áður.

Gistinætur á hótelum í október voru tæplega 470 þúsund samanborið við rúmlega 359 þúsund í október 2021. Gistinætur Íslendinga voru 90.412 í október, eða 4% færri en í október 2021, og gistinætur erlendra gesta voru 379.490 en voru 265.606 í október í fyrra eða 43% fleiri en árinu áður.

Tekjur af erlendum ferðamönnum á þriðja ársfjórðungi 2022 námu rúmlega 187 milljörðum króna samanborið við 106,2 milljarða á þriðja ársfjórðungi 2021. Á tólf mánaða tímabili frá október 2021 til september 2022 voru tekjur af erlendum ferðamönnum 566,5 milljarðar króna samanborið við 193,5 milljarða fyrir sama tímabil ári fyrr.

Í nóvember voru 172.561 brottfarir farþega frá Keflavíkurflugvelli í samanburði við 109.189 í nóvember 2021. Brottfarir farþega með erlent ríkisfang voru 138.193 samanborið við 75.460 í nóvember í fyrra.

Í þessari útgáfu skammtímahagvísa ferðaþjónustu eru birtar uppfærðar tölur um gistinætur, þjónustuviðskipti við útlönd, veltu samkvæmt virðisaukaskattskýrslum, fjölda starfandi skv. skrám, skráningar bílaleigubíla frá Samgöngustofu, umferð á hringveginum frá Vegagerðinni og fjölda farþega frá Ferðamálastofu út frá þjóðernum auk talna um farþegaflutninga og flughreyfingar frá ISAVIA.

Hagstofan gefur ekki lengur út áætlun út frá fyrstu skilum fyrir gistinætur á hótelum.




















Tafla á pdf

Talnaefni
Gistinætur
Hagvísar í ferðaþjónustu

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1000 , netfang gistiskyrslur@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.