FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 17. ÁGÚST 2023

Fjöldi starfandi í einkennandi greinum ferðaþjónustu á Íslandi voru 35.233 í júní 2023 sem er 11% aukning samanborið við júní 2022. Á tólf mánaða tímabili frá júlí 2022 til júní 2023 störfuðu að jafnaði um 30.908 í einkennandi greinum ferðaþjónustu samanborið við 25.665 fyrir sama tímabil ári fyrr.

Gistinætur á hótelum í júní 2023 voru 510.698 samanborið við 495.477 í júní 2022. Gistinætur erlendra gesta voru 419.213 í júní eða 4% fleiri en á sama tíma árið áður. Gistinætur Íslendinga voru 91.485 sem er svipaður fjöldi (+/-0%) og í fyrra.

Í júlí voru 345.917 brottfarir farþega frá Keflavíkurflugvelli í samanburði við 299.473 í júlí 2022. Brottfarir farþega með erlent ríkisfang voru 275.291 samanborið við 234.189 í júlí í fyrra.

Í þessari útgáfu skammtímahagvísa ferðaþjónustu eru birtar uppfærðar tölur gistinætur, fjölda starfandi skv. skrám, skráningar bílaleigubíla frá Samgöngustofu, umferð á hringveginum frá Vegagerðinni og fjölda farþega frá Ferðamálastofu út frá þjóðernum auk talna um farþegaflutninga og flughreyfingar frá ISAVIA.








Taflan á pdf

Talnaefni
Hagvísar í ferðaþjónustu
Farþegar um Keflavíkurflugvöll
Meðal dagleg umferð á stofnvegum eftir mánuðum
Tekjur af erlendum ferðamönnum

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1000 , netfang gistiskyrslur@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.