FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 19. ÁGÚST 2020

Virðisaukaskattskyld velta einkennandi greina ferðaþjónustu dróst saman um 59% í mars-apríl miðað við sama tímabili árið 2019 og nam rúmlega 34 milljörðum króna samanborið við 84 milljörðum króna á síðasta ári.

Í mars voru rúmlega 23 þúsund starfandi í einkennandi greinum ferðaþjónustu eða um 12% færri en sama mánuð árið áður. Flestir voru starfandi við rekstur gististaða og veitinga, eða tæplega 14 þúsund, sem er 14% lækkun borið saman við sama mánuð árið áður. Á tímabilinu apríl 2019 til mars 2020 fækkaði starfandi í einkennandi greinum ferðaþjónustu um 6% samanborið við síðustu 12 mánuði þar áður.

Samkvæmt tilraunatölfræði gistinátta er áætlað að gistinætur á hótelum í júlí hafi dregist saman um 47% og fækkað úr tæplega 508 þúsund í 269 þúsund samanborið við júlí í fyrra.

Í júni fækkaði skráðum gistinóttum um 72%, úr tæplega 943 þúsund í rúmlega 263 þúsund, samanborið við júní í fyrra. Gistinóttum á hótelum og gistiheimilum fækkaði úr 574 þúsund í 128 þúsund á sama tímabili, eða um 78%, á meðan aðrar skráðar gistinætur lækkuðu úr 368 þúsund í 136 þúsund eða um 63%. Nýting hótelherbergja lækkaði um 51 prósentustig, úr 72% niður í 21% á sama tímabili. Framboð hótelherbergja lækkaði einnig um 24% og fór úr 11 þúsund herbergjum niður í rúmlega 8 þúsund herbergi á sama tímabili.

Samkvæmt talningu ISAVIA fóru 59 þúsund farþegar af landi brott í gegnum Leifsstöð í júlí, sem er 80% fækkun samanborið við júlí í fyrra, á meðan 69 þúsund farþegar komu til landsins sem er 77% lækkun borið saman við sama mánuð í fyrra. Skiptifarþegum fækkaði á sama tíma úr tæplega 242 þúsund í rúmlega 3 þúsund eða um tæp 99%.

Í þessari útgáfu skammtímahagvísa ferðaþjónustu eru birtar uppfærðar tölur um gistinætur, virðisaukaskattskylda veltu og fjölda starfandi í einkennandi greinum ferðaþjónustu. Auk þess eru birtar uppfærðar tölur um bílaleigubíla frá Samgöngustofu, umferðartölur frá Vegagerðinni og talningu farþega til landsins samkvæmt talningu Ferðamálastofu auk talna um farþegahreyfingar frá ISAVIA.

Skammtímahagvísar ferðaþjónustu ágúst 2020 Júní  Júlí - Júní 
Gistinætur20192020 %2018-20192019-2020%
Gistinætur alls (fyrir utan óskráðar gistinætur)942.661263.431-72%8.450.8266.526.771-23%
Hótel & gistiheimili574.331127.741-78%5.757.7774.428.733-23%
Gisting greidd gegnum vefsíður á borð við Airbnb7.... .... 
Óskráðar gistinætur (bíla- og innigisting).... .... 
Aðrar tegundir skráðra gististaða1368.330135.690-63%2.693.0492.098.038-22%
  Júní  Júlí - Júní 
Framboð og nýting hótelherbergja20192020 %2018-20192019-2020 %
Gistinætur420.32089.856-79%4.442.8593.457.664-22%
Framboð hótelherbergja11.0228.373-24%124.206120.721-3%
Nýting72%21%-5166%49%-12
  Júlí 
Tilraunatölfræði gistinátta 2019 (raun)   2020 (áætlað) %
Gistinætur á hótelum 507800  269000-47%
  1. ársfjórðungur  2. ársfjórðungur - 1. ársfjórðungs
Þjónustujöfnuður (milljónir króna)20192020 %2018-20192019-2020 %
Tekjur af erlendum ferðamönnum92.88066.692-28%518.128443.678-14%
- Flug26.77219.951-25%176.325132.368-25%
- Neysla / Ferðalög66.10846.741-29%341.803311.311-9%
  Mars - apríl  Maí - apríl 
Velta samkvæmt virðisaukaskattskýrslum2 (m. króna)20192020 %2018-20192019-2020 %
Velta alls84.43634.323-59%665.394558.394-16%
- Farþegaflutningar með flugi31.89713.336-58%268.714205.665-23%
- Rekstur gististaða12.0994.302-64%101.96591.019-11%
- Veitingasala og -þjónusta15.2558.160-47%99.98792.868-7%
- Bílaleigur6.3333.739-41%50.79444.511-12%
- Ferðaskrifstofur og skipuleggjendur (erlendis)2.916584-80%16.91214.513-14%
- Ferðaskrifstofur og skipuleggjendur (á Íslandi)12.6533.060-76%98.41885.582-13%
- Farþegaflutningar á landi2.9081.046-64%23.23919.362-17%
- Farþegaflutningar á sjó, vötnum og ám37596-75%5.3654.872-9%
  Mars  Meðalfjöldi starfandi apríl - mars
Fjöldi starfandi skv. skrám20192020 %2018-20192019-2020 %
Einkennandi greinar ferðaþjónustu26.27023.001-12%29.06527.340-6%
- Flutningar með flugi4.2003.998-5%4.8604.439-9%
- Rekstur gististaða og veitingarekstur16.24913.946-14%17.73116.785-5%
- Ferðaskrifstofur, -skipuleggjendur og bókunarþjónustur3.6953.186-14%3.9923.840-4%
  Ágúst  Meðalfjöldi september - ágúst
Bílaleigubílar320192020 %2018-20192019-2020 %
Bílaleigubílar alls25.29620.212-20%25.17722.728-10%
Bílaleigubílar í umferð24.76018.072-27%23.34219.380-17%
Bílaleigubílar úr umferð5362.140299%1.8343.34883%
  Júlí  Ágúst - júlí 
Umferð á hringveginum420192020 %2018-20192019-2020 %
Suðurland20.40919.265-6%180.626157.865-13%
Vesturland21.70820.935-4%172.443156.760-9%
Norðurland15.18214.046-7%104.47889.516-14%
Austurland4.0023.668-8%27.28023.156-15%
  Júlí  Ágúst - júlí 
Talning farþega úr landi20192020 %2018-20192019-2020 %
Farþegar í gegnum Keflavíkurflugvöll5291.60858.940-80%2.787.4041.594.426-43%
- Erlent ríkisfang231.28145.614-80%2.140.9831.242.417-42%
- Íslenskt ríkisfang60.32713.326-78%646.421352.008-46%
  Júlí  Ágúst - júlí 
Umferð í gegnum Keflavíkurflugvöll20192020 %2018-20192019-2020 %
Heildarfjöldi flughreyfinga.... .... 
Heildarfarþegahreyfingar6843.473131.611-84%8.568.4094.083.014-52%
- Brottfarir295.06459.071-80%2.794.7371.602.605-43%
- Komur306.60269.284-77%2.784.0071.580.672-43%
- Skiptifarþegar (Skiptifarþegar eru taldir tvisvar)241.8073.256-99%2.989.665899.737-70%

Taflan á pdf

1 Aðrar tegundir skráðra gististaða eru tjaldsvæði, farfuglaheimili, orlofshús, skálar í óbyggðum, íbúðagisting, svefnpokagististaðir og heimagististaðir
2 Ferðaskrifstofur og skipuleggjendur (erlendis): Þjónusta sem veitt er í sambandi við ferðalög erlendis, þ.e. er undanþegin virðisaukaskatti skv. 12. grein laga um virðisaukaskatt (nr. 50/1988). Ferðaskrifstofur og skipuleggjendur (á Íslandi): Þjónusta sem veitt er í sambandi við ferðalög á Íslandi, þ.e. er ekki undanþegin virðisaukaskatti skv. 12. grein laga um virðisaukaskatt (nr. 50/1988).
3 Skv. gögnum frá Samgöngustofu
4 Skv. talningu frá Vegagerðinni í gegnum 14 lykilteljara á hringveginum. Mánaðartölur sýna meðalfjölda talninga á dag í hverjum mánuði. Árstímabil sýnir heildartalningar yfir árið
5 Skv. talningu frá Ferðamálastofu
6 Farþegahreyfingar telja brottfarir, komur og skiptifarþega sem eru tvítaldir
7 Tölur ekki reiknaðar vegna ófullnægjandi gagna

Talnaefni
Hagvísar í ferðaþjónustu
Tilraunatölfræði um gistinætur
Þjónustujöfnuður
Fjöldi starfandi í atvinnugreinum skv. skrám
Tekjur af erlendum ferðamönnum

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1000 , netfang gistiskyrslur@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.