FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 07. MAÍ 2008

Hagstofa Íslands hefur gefið út ritið Gistiskýrslur 2007. Í þessu riti eru birtar niðurstöður á  gistináttatalningu fyrir allar tegundir gististaða árið 2007.

Heildarfjöldi gistinátta var 2,6 milljónir árið 2007 sem er um 7,6% aukning frá fyrra ári. Gistinóttum fjölgaði frá árinu 2006 á hótelum og gistiheimilum um 10,9%, 10,6% á farfuglaheimilum og 1,0% á tjaldsvæðum. Fækkun gistinátta var 16,4% á svefnpokagististöðum, 6,8% á heimagististöðum, 6,5% í orlofshúsabyggðum og 3,2% í skálum í óbyggðum.

Aukningin var hlutfallslega mest á Vesturlandi og nam 17%. Á Vestfjörðum fjölgaði gistinóttum um 13,7%, á höfuðborgarsvæðinu um 12,4%, á Suðurlandi um 5,2%, á Suðurnesjum um 4% og á Austfjörðum um 1,7%. Fækkun gistinátta á Norðurlandi eystra var um 1,3% og á Norðurlandi vestra um 0,1%.

Gistiskýrslur 2007 - Hagtíðindi

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.