FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 11. APRÍL 2006

Út er komið ritið Gistiskýrslur 2005 þar sem birtar eru niðurstöður gistináttatalningar Hagstofu Íslands fyrir árið 2005.

Þar kemur fram að heildarfjöldi gistinátta var 2.232.911 árið 2005 sem er 4,8% aukning frá fyrra ári. Gistinóttum fjölgaði frá árinu 2004 á hótelum og gistiheimilum um 6,8%, orlofshúsabyggðum um 25,7%, í skálum í óbyggðum um 3,4% og á farfuglaheimilum um 0,2%. Gistinóttum fækkaði hins vegar á heimagististöðum um 8,2%, svefnpokagististöðum um 3,4% og á tjaldsvæðum um 2,8%.  

Gistinóttum fjölgaði í öllum landshlutum nema tveimur. Aukningin var mest á Suðurnesjum, 10,4%, Austurlandi, 8,4% og á Suðurlandi, 8,0%. Á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði gistinóttum um 6,8%, á Vesturlandi um 5,0% og á Norðurlandi vestra um 0,7%. Gistinóttum fækkaði um 4,9% á Norðurlandi eystra og um 1,2% á Vestfjörðum, en hana má nánast eingöngu rekja til samdráttar á tjaldsvæðum og á heimagististöðum.

Í heftinu eru niðurstöður talningarinnar birtar í töflum, myndum og yfirlitum.

Gistiskýrslur 2005 - Hagtíðindi

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.