FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 06. MARS 2013

Gistinætur á hótelum í janúar voru 90.300 og fjölgaði um 25% frá janúar í fyrra. Gistinætur erlendra gesta voru um 83% af heildarfjölda gistinátta í mánuðinum en þeim fjölgaði um 28% frá sama tíma í fyrra. Jafnframt fjölgaði gistinóttum Íslendinga um 13%.

Á höfuðborgarsvæðinu voru 73.600 gistinætur á hótelum í janúarmánuði og fjölgaði um 23% frá sama mánuði í fyrra. Gistinóttum fjölgaði einnig umtalsvert á samanlögðu svæði Vesturlands og Vestfjarða, voru 2.100 nú en 900 í janúar í fyrra. Á Norðurlandi voru 3.800 gistinætur í janúar og fjölgaði um 55% frá því í fyrra en á Austurlandi voru 1.300 gistinætur og fjölgaði um 58%. Á Suðurnesjum voru um 4.400 gistinætur í janúar, en það er 25% aukning frá sama mánuði í fyrra. Á Suðurlandi voru gistinætur tæplega 5.200 sem er álíka mikið og í janúar í fyrra.

Athygli skal vakin á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum sem opin eru allt árið. Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.