Gistinætur á hótelum í janúar voru 71.600 samanborið við 53.600 í janúar 2011. Gistinætur erlendra gesta voru um 81% af heildarfjölda gistinátta í janúar en gistinóttum þeirra fjölgaði um 37% samanborið við janúar 2011. Á sama tíma fjölgaði gistinóttum Íslendinga um 21%.
Gistinætur á hótelum höfuðborgarsvæðisins voru 59.500 í janúar og fjölgaði um 34% frá fyrra ári. Á Norðurlandi voru 2.300 gistinætur í janúar sem er 52% aukning frá fyrra ári. Á Suðurlandi voru gistinætur 4.700 eða 44% fleiri en í janúar 2011. Á Suðurnesjum voru gistinætur 3.500 sem er 21% aukning frá fyrra ári. Á samanlögðu svæði Vesturlands og Vestfjarða fjölgaði gistinóttum einnig milli ára, voru 900 samanborið við 800 í janúar 2011. Á Austurlandi voru gistinætur á hótelum í janúar svipaðar á milli ára eða um 800.
Athygli skal vakin á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið. Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann.
Talnaefni