FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 05. FEBRÚAR 2013

Gistinætur á hótelum í desember voru 88.700 samanborið við 69.300 í desember 2011. Gistinætur erlendra gesta voru um 78% af heildarfjölda gistinátta í desember en gistinóttum þeirra fjölgaði um 30% samanborið við desember 2011. Á sama tíma voru gistinætur Íslendinga 21% fleiri en árið áður.

Gistinóttum á hótelum fjölgaði í öllum landshlutum. Á höfuðborgarsvæðinu voru gistinætur  73.400 eða um 29% fleiri en í desember 2011. Á Norðurlandi fjölgaði gistinóttum um 58%, voru 3.500 samanborið við 2.200 í desember 2011. Gistinóttum á Suðurnesjum fjölgaði á milli ára um 35%, voru 4.000 samanborið við 3.000 í desember 2011. Á samanlögðu svæði Vesturlands og Vestfjarða fjölgaði gistinóttum um 9% en þar var fjöldi gistinátta í desember 900. Á Suðurlandi voru 5.800 gistinætur á hótelum í desember sem er um 5% aukning samanborið við fyrra ár.

Gistinóttum á hótelum fjölgaði um 20% árið 2012
Gistinætur á hótelum árið 2012 voru 1.786.000 samanborið við 1.486.100 árið 2011. Gistinóttum erlendra gesta hefur fjölgað um 22% á meðan gistinóttum Íslendinga hefur fjölgað um 14%.

Athygli skal vakin á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið.  Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.