FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 06. JÚNÍ 2012

Gistinætur á hótelum í apríl voru um 120.700 samanborið við 109.300 í apríl 2011. Gistinætur erlendra gesta voru um 79% af heildarfjölda gistinátta í apríl en gistinóttum þeirra fjölgaði um 17% samanborið við apríl 2011. Á sama tíma fækkaði  gistinóttum Íslendinga um 8%.

Gistinætur á hótelum á höfuðborgarsvæðinu voru um 92.800 í aprílmánuði, en það er fjölgun um tæp 16% frá fyrra ári. Á Norðurlandi voru um 6.100 gistinætur á hótelum í apríl, en það er um 4% aukning miðað við apríl 2011. Í öðrum landshlutum fækkaði gistinóttum milli ára, mest á samanlögðu svæði Vesturlands og Vestfjarða (23%) þar sem gistinætur fóru úr 3.500 í 2.700. Gistinætur á Suðurlandi voru tæplega 11.800 og fækkaði um 4% milli ára. Á Austurlandi fækkað gistinóttum um 3%, voru 2.500 nú en 2.600 á sama tíma í fyrra. Á Suðurnesjum voru gistinætur 4.800 í apríl sem jafngildir 2% fækkun frá fyrra ári.

Gistinóttum á hótelum fjölgaði um rúm 26% á fyrsta ársþriðjungi
Gistinætur á hótelum í janúar, febrúar, mars og apríl voru 429.700 en voru 340.100 á sama tíma árið 2011. Gistinóttum erlendra gesta hefur fjölgað um 32% samanborið við fyrsta ársþriðjung árið 2011 en gistinóttum Íslendinga hefur fjölgað um 10%.


Athygli skal vakin á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið.  Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.