FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 05. SEPTEMBER 2013

Gistinætur á hótelum í júlí voru 286.200 og fjölgaði um 8% frá júlí í fyrra. Gistinætur erlendra gesta voru 90% af heildarfjölda gistinátta í mánuðinum en þeim fjölgaði um 9% frá sama tíma í fyrra. Gistinóttum Íslendinga fjölgaði um 3%.

Á höfuðborgarsvæðinu voru 163.500 gistinætur á hótelum í júlí sem er aukning um 6% frá sama mánuði í fyrra. Á Suðurnesjum voru 14.100 gistinætur í júlí sem er um 38% aukning miðað við júlí 2012.  Á samanlögðu svæði Vesturlands og Vestfjarða voru 17.700 gistinætur í júlí sem er um 23% aukning frá fyrra ári.  Á Norðurlandi voru 30.500 gistinætur í júlí sem er um 8% aukning miðað við júlí 2012. Gistinóttum á hótelum á Suðurlandi fjölgaði einnig um 8% en þar voru gistinætur um 43.200 samanborið við 40.200 í júlí 2012.  Á Austurlandi fjölgaði gistinóttum um 3% milli ára fóru úr 16.600 í 17.200.

Gistinóttum á hótelum fjölgaði um 14% á fyrstu sjö mánuðum ársins
Gistinætur á hótelum fyrstu sjö mánuði ársins 2013 voru 1.217.500 til samanburðar við 1.041.750 fyrir sama tímabil árið 2012. Gistinóttum erlendra gesta hefur fjölgað um 15% samanborið við sama tímabil 2012 á meðan gistinóttum Íslendinga hefur fjölgað um 10%.

 

Athygli skal vakin á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum sem opin eru allt árið. Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.