FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 04. OKTÓBER 2013

Gistinætur á hótelum í ágúst voru 259.800 og fjölgaði um 5% frá ágúst í fyrra. Gistinætur erlendra gesta voru 89% af heildarfjölda gistinátta í mánuðinum en þeim fjölgaði um 5% frá sama tíma í fyrra. Gistinóttum Íslendinga fjölgaði um 3%.

Á höfuðborgarsvæðinu voru 151.800 gistinætur á hótelum í ágúst sem er aukning um 2% frá sama mánuði í fyrra. Á samanlögðu svæði Vesturlands og Vestfjarða voru 15.100 gistinætur í ágúst sem er um 24% aukning frá fyrra ári.  Á Suðurnesjum voru 11.700 gistinætur í ágúst sem er um 19% aukning miðað við ágúst 2012.  Á Norðurlandi voru 28.000 gistinætur í ágúst sem er rúmlega 8% aukning miðað við ágúst 2012. Á Austurlandi fjölgaði gistinóttum um 11% milli ára og voru um 17.000. Gistinætur á hótelum á Suðurlandi voru álíka margar og í ágúst 2012 eða 36.100.

Gistinóttum á hótelum fjölgaði um 14% á fyrstu átta mánuðum ársins
Gistinætur á hótelum fyrstu átta mánuði ársins 2013 voru 1.466.273 til samanburðar við 1.290.063 fyrir sama tímabil árið 2012. Gistinóttum erlendra gesta hefur fjölgað um 15% samanborið við sama tímabil árið 2012 á meðan gistinóttum Íslendinga hefur fjölgað um 9%.

Athygli skal vakin á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum sem opin eru allt árið. Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.