FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 05. FEBRÚAR 2014

Gistinætur á hótelum í desember voru 117.100 sem er 31% aukning miðað við desember 2012. Gistinætur erlendra gesta voru 84% af heildarfjölda gistinátta í mánuðinum en þeim fjölgaði um 43% frá sama tíma í fyrra á meðan gistinóttum Íslendinga fækkaði um 5%.

Á höfuðborgarsvæðinu voru 93.200 gistinætur á hótelum í desember sem er fjölgun um 27% miðað við desember 2012. Á samanlögðu svæði Vesturlands og Vestfjarða voru 2.200 gistinætur sem er fjölgun um 135% miðað við sama tímabil 2012. Á Suðurlandi voru  gistinætur 9.600 í desember sem er aukning um 66% frá fyrra ári. Á Austurlandi voru gistinætur 1.700 sem er 62% aukning samanborið við desember 2012. Á Suðurnesjum voru 6.000 gistinætur í desember sem er aukning um 48% frá fyrra ári. Á Norðurlandi voru gistinætur 4.500 í desember og fjölgaði um tæp 8% samanborið við desember 2012. 

Gistinóttum á hótelum fjölgaði um rúm 14% árið 2013
Gistinætur á hótelum fyrir árið 2013 voru 2.047.022 til samanburðar við 1.794.367 gistinætur árið 2012. Frá árinu 2012 hefur gistinóttum erlendra gesta hefur fjölgað um 15% á meðan gistinóttum Íslendinga hefur fjölgað um 10%.

Athygli skal vakin á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum sem opin eru allt árið. Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.