FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 05. JÚLÍ 2013

Gistinætur á hótelum voru 161.300 í maí og fjölgaði um 16% frá maí í fyrra. Gistinætur erlendra gesta voru um 79% af heildarfjölda gistinátta í mánuðinum en það er fjölgun um 14% frá sama tíma í fyrra. Gistinóttum Íslendinga fjölgaði hins vegar um 21% milli ára í maí.

Á höfuðborgarsvæðinu voru 110.000 gistinætur á hótelum í maí sem er aukning um 8% frá sama mánuði í fyrra. Utan höfuðborgarsvæðisins fjölgaði gistinóttum umtalsvert á milli ára. Á Suðurnesjum voru 8.000 gistinætur í maí en 4.800 í maí í fyrra. Á Austurlandi fjölgaði gistinóttum úr 5.000 í 8.100 og á Norðurlandi fjölgaði þeim um 48%. Á samanlögðu svæði Vesturlands og Vestfjarða voru 6.500 gistinætur í maí sem er um 30% aukning frá fyrra ári. Gistinóttum á hótelum á Suðurlandi fjölgaði um 7% en þar voru gistinætur um 15.200 nú en 14.100 í maí í fyrra.

Gistinóttum á hótelum fjölgaði um 22% á fyrstu fimm mánuðum ársins
Gistinætur á hótelum fyrstu fimm mánuði ársins voru 693.400 en 569.500 á sama tíma í fyrra. Gistinóttum erlendra gesta hefur fjölgað um 24% miðað við sama tíma í fyrra en gistinóttum Íslendinga hefur fjölgað um 13%.

Athygli er vakin á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum sem opin eru allt árið. Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.