FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 07. ÁGÚST 2013

Gistinætur á hótelum í júní voru 239.800 og fjölgaði um 15% frá júní í fyrra. Gistinætur erlendra gesta voru tæplega 88% af heildarfjölda gistinátta í mánuðinum en þeim fjölgaði um 17% frá sama tíma í fyrra. Gistinóttum Íslendinga fjölgaði um 5%.

Utan höfuðborgarsvæðisins var aukning gistinátta hlutfallslega mest á milli ára.  Á höfuðborgarsvæðinu voru 143.400 gistinætur á hótelum í júní sem er aukning um 8% frá sama mánuði í fyrra. Á Austurlandi fjölgaði gistinóttum um 51% í 17.000 á milli ára. Á samanlögðu svæði Vesturlands og Vestfjarða voru 14.100 gistinætur í júní sem er um 46% aukning frá fyrra ári.  Á Norðurlandi voru 25.500 gistinætur í júní sem er um 44% aukning miðað við júní 2012. Gistinóttum á hótelum á Suðurlandi fjölgaði um um 9% en þar voru gistinætur um 30.500 samanborið við 28.000 í júní 2012. Á Suðurnesjum voru 9.200 gistinætur í júní sem er um 8% aukning miðað við júní 2012. 

Gistinóttum á hótelum fjölgaði um 20% á fyrstu sex mánuðum ársins
Gistinætur á hótelum fyrstu sex mánuði ársins 2013 voru 931.900 til samanburðar við 777.900 fyrir sama tímabil árið 2012. Gistinóttum erlendra gesta hefur fjölgað um 22% samanborið við sama tímabil 2012 á meðan gistinóttum Íslendinga hefur fjölgað um 12%.

Athygli skal vakin á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum sem opin eru allt árið. Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.