FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 06. JÚNÍ 2013


Gistinætur á hótelum í apríl voru 133.000 og fjölgaði um 10% frá apríl í fyrra. Gistinætur erlendra gesta voru um 79% af heildarfjölda gistinátta í mánuðinum en þeim fjölgaði um 9% frá sama tíma í fyrra. Jafnframt fjölgaði gistinóttum Íslendinga um 12%.

Á höfuðborgarsvæðinu voru 102.000 gistinætur á hótelum í apríl sem er aukning um 10% frá sama mánuði í fyrra. Gistinóttum fjölgaði umtalsvert á Austurlandi en þar voru 4.200 gistinætur í apríl samanborið við 2.500 í apríl 2012.  Á samanlögðu svæði Vesturlands og Vestfjarða voru 3.700 gistinætur í apríl sem er um 30% meira en í sama mánuði árið 2012. Á Suðurnesjum voru gistinætur á hótelum 5.400 apríl og fjölgaði um 13%. Á Norðurlandi voru gistinætur 6.700 sem er um 10% meira en í apríl 2012. Gistinóttum á hótelum fækkaði á Suðurlandi um 6% en þar voru gistinætur um 11.000 samanborið við 11.800 í apríl 2012.

Gistinóttum á hótelum fjölgaði um 23% á fyrsta ársþriðjungi
Gistinætur á hótelum fyrstu fjóra mánuði ársins 2013 voru 527.300 til samanburðar við 429.900 fyrir sama tímabil árið 2012. Gistinóttum erlendra gesta hefur fjölgað um 26% samanborið við fyrsta ársþriðjung 2012 á meðan gistinóttum Íslendinga hefur fjölgað um 11%.

Athygli skal vakin á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum sem opin eru allt árið. Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.