FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 05. NÓVEMBER 2007


Gistinóttum á hótelum í september fjölgaði um tæp 5% milli ára
Gistinætur á hótelum í september síðastliðnum voru 121.400 en voru 116.100 í sama mánuði árið 2006, sem er fjölgun um 5.300 nætur eða tæplega 5%.  Gistinóttum fjölgaði eingöngu á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurlandi. Hlutfallslega varð meiri fjölgun á Suðurlandi þar sem hún nam tæpum 15%, en gistinóttum fjölgaði þar úr 11.600 í 13.400 milli ára. Á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði gistinóttum um tæp 8% en þar fór fjöldi gistinátta úr 77.900 í 83.800.  Á öðrum landsvæðum fækkaði gistinóttum á hótelum í september milli ára. Samdrátturinn var mestur á Austurlandi en gistinóttum fækkaði úr 5.600 í 4.200, 25%. Á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða nam fækkun gistinátta tæpum 9% þegar gistinætur fóru úr 10.500 í 9.600 milli ára.  Á Norðurlandi var lítil breyting milli ára, eða um 1% samdráttur. 

Fjölgun gistinátta á hótelum í september má aðeins rekja til Íslendinga (29%) því gistinóttum  útlendinga fækkaði um rúmt 1%.

 

Gistinóttum á hótelum fyrstu níu mánuði ársins fjölgaði um 13% milli ára
Gistinætur á hótelum fyrstu níu mánuði ársins voru 1.064.200 en voru 942.000 sama tímabil árið 2006.  Fjölgun varð á öllum landsvæðum, mest á höfuðborgarsvæðinu, 15% og á Norðurlandi, 14%.  Aukningin nam 11% á Suðurlandi, 6% á Austurlandi og 5% á Suðurnesjum, Vesturlandi og Vestfjörðum.

Fjölgun gistinátta fyrstu níu mánuði ársins nær bæði til Íslendinga, 16% og útlendinga, 12%.

 

Athygli skal vakin á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið.  Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann. 

Tölur fyrir 2007 eru bráðabirgðatölur.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.