Heildarfjöldi greiddra gistinátta í október dróst saman um 4,9% borið saman við sama mánuð í fyrra. Kom sú fækkun fram í öllum flokkum gististaða nema á hótelum þar sem var 3% aukning. Gistinóttum á gistiheimilum fækkaði um 8,2%, á öðrum tegundum gististaða (farfuglaheimilum, íbúðagistingu o.s.frv.) fækkaði þeim um 8,1% og 19,6% samdráttur varð á gistinóttum sem miðlað var í gegnum Airbnb og svipaðar síður.

Greiddar gistinætur ferðamanna á öllum gististöðum voru um 758.400 í október síðastliðnum, en þær voru um 797.600 í sama mánuði í fyrra. Gistinætur á hótelum og gistiheimilum voru 506.200, þar af 409.200 á hótelum og 97.000 á gistiheimilum. Gistinætur í íbúðagistingu, farfuglaheimilum o.þ.h. voru um 129.200 og um 123.000 í gegnum vefsíður á borð við Airbnb.

Gistinóttum á hótelum fjölgaði um 3%
Gistinætur á hótelum í október síðastliðnum voru 409.200, sem er 3% aukning frá sama mánuði árið áður. Gistinóttum fækkaði um 3% á Norðurlandi, Vesturlandi og Vestfjörðum en fjölgaði í öðrum landshlutum, sérstaklega á Suðurnesjum og Austurlandi þar sem þeim fjölgaði um 3.500 gistinætur í hvorum landshluta fyrir sig (12% og 42% aukning). Um 51% allra hótelgistinátta voru á höfuðborgarsvæðinu eða 225.300 og stóð fjöldi þeirra nánast í stað milli ára.

Gistinætur á hótelum
  Október   Nóvember-október  
  2018 2019 % 2017-2018 2018-2019 %
Alls398.313409.21534.469.0264.416.749-1
Höfuðborgarsvæði224.602225.34602.608.3122.504.159-4
Suðurnes29.16732.66812310.903314.6361
Vesturland og Vestfirðir23.81923.185-3242.378241.7990
Norðurland30.91829.903-3314.979338.2067
Austurland8.36211.90842102.249116.19614
Suðurland81.44586.2056890.205901.7531
Þjóðerni
Íslendingar36.83838.7455452.118426.656-6
Erlendir gestir361.475370.47024.016.9083.990.093-1

Á tólf mánaða tímabili, frá nóvember 2018 til október 2019, var heildarfjöldi gistinátta á hótelum um 4.417.000, sem er 1% samdráttur miðað við sama tímabil árið áður.

Um 91% gistinátta á hótelum voru skráðar á erlenda ferðamenn, eða 370.500, sem er 2% fjölgun frá október 2018. Bandaríkjamenn voru með flestar gistinætur (116.500), þar á eftir komu Bretar (58.000) og Kínverjar (31.900) en gistinætur Íslendinga voru 38.700.

Herbergjanýting á hótelum í október 2019 var 68,4%, sem er lækkun um 2,4 prósentustig frá október 2018. Á sama tíma hefur framboð gistirýmis aukist um 8,6% mælt í fjölda herbergja. Nýtingin í október var best á höfuðborgarsvæðinu, eða 77,5%.

Framboð og nýting hótelherbergja í október
  Herbergjafjöldi á hótelum í október Herbergjanýting hótela í október
2018 2019 % 2018 2019 prst
Alls10.17611.0488,6%70,8%68,4%-2,4
Höfuðborgarsvæði5.0775.3665,7%80,3%77,5%-2,9
Suðurnes62783933,8%83,0%67,0%-16,0
Vesturland og Vestfirðir79189713,4%53,0%46,9%-6,2
Norðurland1.1231.2168,3%52,4%51,3%-1,1
Austurland34944126,4%42,4%48,4%6,0
Suðurland2.2092.2893,6%65,6%68,9%3,3

Samkvæmt áætlun sem byggir á svörum úr landamærarannsókn Ferðamálastofu og Hagstofu Íslands voru gistinætur erlendra ferðamanna í bílum utan tjaldsvæða um 18.000 og gistinætur hjá vinum og ættingjum, í gegnum húsaskipti eða annars staðar þar sem ekki var greitt sérstaklega fyrir gistingu, um 23.000.

Lýsigögn
Gistináttatölur fyrir hótel koma úr gistináttagrunni Hagstofu Íslands. Áætlun á gistinóttum utan hefðbundinnar gistináttatalningar byggist á niðurstöðum úr landamærarannsókn Ferðamálastofu og Hagstofu Íslands meðal erlendra ferðamanna sem framkvæmd er í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Einnig er byggt á gögnum úr gistináttagrunni Hagstofunnar, að teknu tilliti til upplýsinga um virðisaukaskattskylda veltu frá Airbnb og bílaleigum sem leggja áherslu á útleigu viðverubúinna húsbíla. Þær aðferðir sem beitt er við áðurnefnda áætlun eru í þróun innan Hagstofu Íslands. Tölur sem birtar eru um ógreiddar gistinætur og gistinætur, sem miðlað er í gegnum vefsíður eru því bráðabirgðatölur og geta tekið breytingum með hliðsjón af bættum upplýsingum og aðferðum. Við landsvæðaskiptingu þessara talna er stuðst við vefskröpun og gögn úr gistináttagrunni Hagstofunnar. Frekari lýsigögn um fjölda gististaða, gesta og gistinátta má nálgast á vef Hagstofunnar.

Allar tölur fyrir 2019 eru bráðabirgðatölur.

Talnaefni