FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 03. DESEMBER 2010

Vinsamlega athugið að þessari fréttatilkynningu var breytt 3. des. 2010 14:32 frá upprunalegri útgáfu.



Gistinóttum fækkar um rúm 4%
Gistinætur á hótelum í október síðastliðnum voru 101.900 en voru 106.400 í sama mánuði árið 2009.

Fækkun gistinátta í október nær eingöngu til höfuðborgarsvæðisins, en í öllum öðrum landshlutum var aukning á gistinóttum milli ára. Á höfuðborgarsvæðinu fækkaði gistinóttum um 10% milli ára, úr 81.300 í 73.400. Gistinóttum fjölgaði hlutfallslega mest á Norðurlandi, úr 3.800 í 5.100 eða um 35% milli ára. Á Suðurnesjum voru 5.200 gistinætur í október sem 28% fjölgun frá fyrra ári. Á Austurlandi voru 2.400 gistinætur, fjölgaði um 16% og á Vestfjörðum og Vesturlandi voru 2.600 gistinætur í október sem er aukning um 15% frá fyrra ári. Á Suðurlandi voru 13.100 gistinætur í október sem er 3% aukning samanborið við október 2009.

Fækkun gistinátta á hótelum í október nær eingöngu til erlendra gesta. Gistinóttum þeirra fækkaði um 9% samanborið við október 2009 á meðan gistinóttum Íslendinga fjölgaði um 11%.


Gistinóttum á hótelum fyrstu tíu mánuði ársins fækkar um rúm 3% milli ára
Gistinætur fyrstu tíu mánuði ársins voru 1.164.500 en voru 1.206.400 á sama tímabili árið 2009. Gistinóttum fjölgaði á Suðurnesjum, Vesturlandi og Vestfjörðum um 3%.  Gistinóttum fækkar í öðrum landshlutum, Austurlandi um 6%, Norðurlandi og á höfuðborgarsvæðinu um 4% og um 2% á Suðurlandi.

Fyrstu tíu mánuði ársins hefur gistinóttum Íslendinga fækkað um 4% og gistinóttum erlendra gesta um 3% miðað við sama tímabil árið 2009.

 

Athygli skal vakin á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið.  Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann. 

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.