Gistinóttum á hótelum í október fjölgaði um tæp 11% milli ára
Gistinætur á hótelum í október síðastliðnum voru 108.300 en voru 97.900 í sama mánuði árið 2006, sem er fjölgun um 10.400 nætur eða tæplega 11%. Gistinóttum fjölgaði á höfuðborgarsvæðinu, Norðurlandi og samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða. Hlutfallslega varð fjölgun mest á höfuðborgarsvæðinu þar nam hún rúmum 16%, en gistinóttum fjölgaði þar úr 71.500 í 83.000 milli ára. Á Norðurlandi var aukning gistinátta um 3%, þar fóru gistinætur úr 6.300 í 6.400. Á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða var fjölgun gistinátta um 4%, þar fjölgaði gistinóttum úr 7.100 í 7.400. Á öðrum landsvæðum fækkaði gistinóttum á hótelum í október milli ára. Samdrátturinn var mestur á Austurlandi en gistinóttum fækkaði úr 3.600 í 2.100, 41%. Á Suðurlandi var lítil breyting milli ára, eða um 1% samdráttur.
Fjölgun gistinátta á hótelum í október má bæði rekja til Íslendinga 24% og útlendinga 6%.
Gistinóttum á hótelum fyrstu tíu mánuði ársins fjölgaði um 13% milli ára
Gistinætur á hótelum fyrstu tíu mánuði ársins voru 1.172.343 en voru 1.039.899 sama tímabil árið 2006. Fjölgun varð á öllum landsvæðum, mest á höfuðborgarsvæðinu, 15% og á Norðurlandi, 13%. Aukningin nam 10% á Suðurlandi, 2% á Austurlandi og 5% á Suðurnesjum, Vesturlandi og Vestfjörðum.
Fjölgun gistinátta fyrstu tíu mánuði ársins nær bæði til Íslendinga, 18% og útlendinga, 11%.
Athygli skal vakin á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið. Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann.
Tölur fyrir 2007 eru bráðabirgðatölur.
Talnaefni