FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 07. JANÚAR 2011


Gistinóttum fækkar um tæp 2%
Gistinætur á hótelum í nóvember síðastliðnum voru 70.300 en voru 71.500 í sama mánuði árið 2009.

Gistinóttum í nóvember fækkaði hlutfallslega mest á Vesturlandi og Vestfjörðum eða um 22%, voru ríflega 1.700 samanborið við 2.200 í nóvember 2009. Á Suðurnesjum voru tæplega 3.000 gistinætur í nóvember, en það er um 5% minna en árið áður. Á höfuðborgarsvæðinu fækkaði gistinóttum einnig um 5%, voru 52.500 samanborið við 55.000 í nóvember 2009. Gistinóttum á hótelum fjölgaði í öðrum landshlutum. Á Austurlandi fjölgaði gistinóttum um 37%, voru 1.100 samanborið við 800 í nóvember 2009. Á Suðurlandi voru 8.800 gistinætur í nóvember sem er 21% aukning frá fyrra ári. Á Norðurlandi voru gistinætur í nóvember tæplega 3.200 og fjölgaði um 4% miðað við nóvember 2009.

Gistinóttum erlendra gesta fækkaði um rúm 2% samanborið við nóvember 2009 á meðan gistinóttum Íslendinga fækkaði um tæplega 1%.

Gistinóttum á hótelum fyrstu ellefu mánuði ársins fækkar um rúm 3% milli ára
Gistinætur fyrstu ellefu mánuði ársins voru 1.236.900 en voru 1.277.800 á sama tímabili árið 2009. Gistinóttum fjölgaði á Suðurnesjum um 3% og á Vesturlandi og Vestfjörðum um 2%.  Gistinóttum fækkar í öðrum landshlutum, Austurlandi um 5%, á Norðurlandi og á höfuðborgarsvæðinu um 4%. Á Suðurlandi er fjöldi gistinátta sambærilegur og á fyrra ári.

Fyrstu ellefu mánuði ársins hefur gistinóttum Íslendinga sem og erlendra gesta fækkað um 3% ef miðað er við sama tímabil árið 2009.

 

Athygli er vakin á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið. Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.