FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 05. JANÚAR 2007


Gistinóttum á hótelum í nóvember fjölgaði um 23% milli ára

Gistinætur á hótelum í nóvember síðastliðnum voru 70.900 en voru 57.400 í sama mánuði árið 2005, sem er fjölgun um rúmar 13 þúsund nætur, eða 23%.  Gistinóttum fjölgaði í öllum landshlutum nema á Suðurlandi þar sem þeim fækkaði um 20%, úr 5.900 í 4.700.  Aukningin var hlutfallslega mest á Austurlandi þar sem gistinætur fóru úr 1.400 í 2.100 milli ára, 45% aukning.  Á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða fjölgaði gistinóttum úr 5.000 í 6.500, eða um 30%.  Á höfuðborgarsvæðinu nam fjölgunin 28% í nóvembermánuði, en fjöldi gistinátta fór úr 42.500 í 54.300.   Á Norðurlandi fjölgaði gistinóttum um 23%, úr 2.600 í 3.200. 

Skiptingin milli Íslendinga og útlendinga í nóvember var þannig að gistinóttum útlendinga fjölgaði um 29% og Íslendinga um 13%.  Útlendingar vega þó þyngra þar sem gistinætur þeirra eru tæp 68% af heildarfjölda gistinátta á hótelum í nóvember.

Gistirými á hótelum í nóvembermánuði jókst milli ára.  Fjöldi herbergja fór úr 3.519 í 3.830, 9% aukning og fjöldi rúma úr 7.160 í 7.739, 8% aukning.  Hótel sem opin voru í nóvember síðastliðnum voru 72 en 68 í sama mánuði árið 2005.


Gistinóttum á hótelum janúar-nóvember fjölgaði um 12%
Á fyrstu ellefu mánuðum ársins fjölgaði gistinóttum um 12% frá fyrra ári, en gistináttafjöldinn fór úr 992.800 í 1.111.600 milli ára.  Fjölgun varð á öllum landsvæðum.  Hlutfallslega varð aukningin mest á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða þar sem gistinóttum fjölgaði um 23%.  Á Norðurlandi nam aukningin 17%, Austurlandi 13%, höfuðborgarsvæðinu 11% og á Suðurlandi 4%.  Fjölgun gistinátta á þessu tímabili skiptist þannig að gistinóttum Íslendinga fjölgaði um 14% og útlendinga um 12%.   Eins og áður sagði vegur fjölgun gistinátta útlendinga þyngra þar sem gistinætur þeirra eru um 80% af heildarfjölda gistinátta á hótelum þetta tímabil. Sömu sögu er að segja um gistinætur á höfuðborgarsvæðinu, en þær nema um 67% af heildarfjölda gistinátta.


Athygli skal vakin á því að hér er átt við gistinætur á hótelum eingöngu, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið.  Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann. 

Tölur fyrir Suðurnes, Vesturland og Vestfirði eru lagðar saman og birtar í einu lagi vegna þess hve gististaðir á Suðurnesjum og Vestfjörðum eru fáir.

Tölur fyrir 2006 eru bráðabirgðatölur.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.