FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 05. MAÍ 2011


Gistinóttum fjölgaði um tæp 1,5% í mars 
Gistinætur á hótelum í mars síðastliðnum voru 96.900 en voru 95.400 í sama mánuði árið 2010. Gistinætur erlendra gesta voru um 71% af heildarfjölda gistinátta á hótelum í mars en gistinóttum þeirra fækkar 1% á meðan gistinóttum Íslendinga fjölgar um 10% samanborið við mars 2010.

Gistinóttum á hótelum fjölgaði í öllum landshlutum nema á Suðurlandi og á Norðurlandi. Á höfðuborgarsvæðinu voru 72.600 gistinætur í mars sem er 4% aukning frá fyrra ári. Gistinætur á Suðurnesjum voru 4.400 í mars sem er 25% aukning frá fyrra ári. Á samanlögðu svæði Vesturlands og Vestfjarða fjölgaði gistinóttum úr 1.800 í 2.100 eða um 17% samanborið við mars 2010. Á Austurlandi var fjöldi gistinátta svipaður milli ára eða um 1.900. Gistinætur á Norðurlandi voru 5.300 í mars og fækkaði um 5% milli ára. Á Suðurlandi voru gistinætur 10.600 og fækkaði þeim um 17% milli ára.

Gistinóttum á hótelum fyrstu þrjá mánuði ársins fjölgaði um tæp 2% milli ára
Gistinætur fyrstu þrjá mánuði ársins voru 232.400 en voru 228.000 á sama tímabili 2010. Gistinóttum fjölgaði á Austurlandi um 20%, Suðurnesjum um 15% og 3% á höfuðborgarsvæðinu. Gistinætur voru svipaðar milli ára á Suðurlandi en annars staðar var fækkun, mest á Norðurlandi samanborið við fyrsta ársfjórðung 2010.


Fyrstu þrjá mánuði ársins fjölgar gistinóttum Íslendinga sem og erlendra gesta um 2% samanborið við fyrsta ársfjórðung 2010.

Athygli skal vakin á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið.  Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann. 

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.