FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 05. MAÍ 2008


Gistinóttum á hótelum í mars fækkaði um 12% milli ára
Gistinætur á hótelum í mars síðastliðnum voru 77.500 en voru 88.100 í sama mánuði árið 2007. Gistinóttum fækkaði því um rúm 12% milli ára, mest á Austurlandi (-22%), samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða (-21%) og Suðurlandi (-20%). Hlutfallslega fækkaði  gistinóttum mest á Austurlandi, úr 2.700 í 2.100. Á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða fækkaði gistinóttum úr 7.600 í 5.800 og á Suðurlandi úr 9.200 í 7.300. Á höfuðborgarsvæðinu fækkaði gistinóttum úr 64.300 í 56.900 eða um tæp 12%. Gistinóttum fjölgaði í mars á Norðurlandi um rúm 16% á milli ára, úr 4.600 í 5.400.

Fjölgun gistinátta á hótelum á Norðurlandi í mars má bæði rekja til Íslendinga (16%) og útlendinga (20%). Fækkun gistinátta á öðrum landsvæðum milli ára má bæði rekja til Íslendinga (-15%) og útlendinga (-11%).

Gistinóttum á hótelum fyrstu þrjá mánuði ársins fjölgaði um rúm 3% milli ára
Gistinætur á hótelum fyrstu þrjá mánuði ársins voru 211.778 en voru 204.755 á sama tímabili árið 2007.  Fjölgun varð á Norðurlandi um rúm 10% og  á höfuðborgarsvæðinu um rúm 9% milli ára. Fækkun varð á öllum öðrum landsvæðum mest  á Austurlandi eða 24%, á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða um rúmlega 18% og á Suðurlandi ríflega 15%.

Fjölgun gistinátta fyrstu þrjá mánuði ársins nær bæði til Íslendinga, 7% og útlendinga, 2%.

Athygli skal vakin á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið.  Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann. 

Tölur fyrir 2008 eru bráðabirgðatölur.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.