FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 04. MAÍ 2007


Gistinóttum á hótelum í mars fjölgaði um 19% milli ára

Gistinætur á hótelum í mars síðastliðnum voru 87.600 en voru 73.700 í sama mánuði árið 2006, sem er fjölgun um 13.900 nætur eða tæplega 19%.  Gistinóttum fjölgaði í öllum landshlutum nema á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða þar sem þeim fækkaði um tæp 2%, úr 6.900 í 6.800.  Aukningin var hlutfallslega mest á Austurlandi þar sem gistinóttum fjölgaði um rúmlega helming, fóru úr 1.700 í 2.700 milli ára (58% aukning).  Á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði gistinóttum um 11.900, úr 52.200 í 64.100 sem er 23% aukning.  Á Norðurlandi nam fjölgunin 13% í mars, en fjöldi gistinátta fór úr 4.300 í 4.900 milli ára.  Gistinætur á hótelum á Suðurlandi voru 9.100 í mars síðastliðnum en voru 8.500 í sama mánuði árið 2006 og fjölgaði þar með um rúm 7%.

Fjölgun gistinátta á hótelum í mars má eingöngu rekja til útlendinga þar sem gistinætur Íslendinga stóðu í stað milli ára.

Gistirými á hótelum í marsmánuði jókst milli ára.  Fjöldi herbergja fór úr 3.656 í 3.866, 6% aukning og fjöldi rúma úr 7.419 í 7.861, 6% aukning.  Hótel sem opin voru í mars síðastliðnum voru 72 en 73 í sama mánuði árið 2006.

 

Gistinóttum á hótelum á fyrsta ársfjórðungi fjölgaði um 20% milli ára
Gistinætur á hótelum í janúar, febrúar og mars samanlögðum voru 203.300 en voru 169.900 fyrir sama tímabil árið 2006.  Fjölgun varð á öllum landsvæðum.  Mest var hún þó á Austurlandi þar sem gistinæturnar nærri tvöfölduðust milli ára, úr 3.300 í 6.400.  Aukningin nam 22% á Suðurlandi, 21% á höfuðborgarsvæðinu, 11% á Norðurlandi og 0,5% á Suðurnesjum, Vesturlandi og Vestfjörðum, en þessar tölur eru birtar í einu lagi vegna þess hve gististaðir eru fáir.

Fjölgun gistinátta fyrstu þrjá mánuði ársins skiptist þannig að gistinóttum útlendinga fjölgaði um 27% og Íslendinga um 4%.

 

Athygli skal vakin á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið.  Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann. 

Tölur fyrir 2007 eru bráðabirgðatölur.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.